- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
229

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

229-

af, kom hann skyndilega auga á grannvaxna beinagrind, er
þok-aðist í áttina til hans; framan á hjekk hálfgagnsær kviður, er að
gildleika var ónáttúrlega stór í hlutfalli við hina renglulegu
beinagrind. »Nei, sjáið til,« hugsaði læknirinn, »þetta er nýr og
sjald-gæfur magasjúkdómur.« Og vísindin höfðu aptur náð tangarhaldi
á honum.

Hin grannvaxna beinagrind færðist nær og nær, og er hün
var fáein skref frá lækninum, nam hún staðar, rjetti út hendurnar
í áttina til hans, opnaði skoltinn og sagði með skærri
unglings-röddu: »Kæri Cornelius! ertu svo niðursokkinn í hugsanir þínar,
að |>ü þekkir ekki kærustuna þina aptur? Æ, miklir blessaðir
fugl-ar eru þessir lærðu mennl«

Læknirinn varð öldungis forviða, setti upp gleraugað og
opn-aði hægra augað. Mikil þó firn! Það var unnustan, hans elskaða
unnusta, er stóð frammi fyrir honum. Minna mátti nú gagn gjöra.
Hann varð sem hamslaus: »Aldrei, aldrei,« æpti hann, baðaði út
höndunum og lagði á flótta inn til borgarinnar.

Veslings Magga stóð eptir sem prumulostin. »Cornelius læknir
er orðinn vitskertur,« hugsaði hún; henni fjellust hendur og hün

hnje i dapurri örvæntingu upp að trjástofninum.

* *

*



Þegar Schwanthaler læknir var kominn heim á vinnustofu
sina, horfði hann i gaupnir sjer og grjet beiskum tárum. »Það
haföi jeg þó aldrei imyndað mjer,« sagði hann og barmaði sjer.
»Ef jeg nü fengi aldrei að sjá hana öðru vísi!« Oðru auganu
hjelt hann þó að minnsta kosti óskertu. Hann opnaði það svo
vel, sem hann gåt, til að ganga dr skugga um, hvort það væri
heilbrigt. Æ, hvernig gat staðið á þessu? Hafði hann af
ákaf-anum misst dropa af vökvanum i hægra augað lika! Honum
fannst hann ekki sjá eins skýrt og áður. Hann leit i spegil;
honum virtust andlitsdrættirnir ógreinilegri og holdið ekki eins
þjett. Atti hann nü lika að sjá sjálfa sig sem slikjuklædda
beinagrind! Æ, mikil skelfing! Ekki að sjá, ekki að sjá sjálfan sig
og ekki hana öðruvisi en svona!

Og hann varð sem æðisgenginn og bölvaði visindunum.
»Prjedikarinn hefur satt að mæla,« æpti hann, og reif i hárið,
»sá sem eykur sina þekkingu, eykur sinar raunir. Guð hefur
valið sjálfum sjer hið versta hlutskiptið: sannleikann, napran sann-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0255.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free