Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
D
æíi mín öll önnur, ef jeg hefði lært að stjórna geði mínu. Anna
sagði í fyrradag, að jeg væri svo skapillur, að ómögulegt væri að
eiga við mig, og svo væri jeg sífullur.« — »Jæja,« sagði liami og
tók vínflösku úr vasa sinum og þeytti henni niður i grjótið, »ekki
skalt þú framar gera mig að djöfli, eða koma mjer til að vinna
fleiri ódáðaverkin. Og — hvað ætli liggi nú næst fyrir mjer?
Sjálf-sagt að jeg verð tekinn íastur, dreginn fyrir sýslumann og
dæmd-ur sekur, því glæpir dyljast aldrei. Og ■— hvað svo? Fangelsi,
eða hvað? Það afsakar mig ekki neitt, þó jeg segi, að jeg hafi
verið viti mínu fjær af ölæði, það er líka óvíst, hvort jeg hefi
verið það, þvi jeg man vel eptir öllu, sem gerðist. Það má nærri
geta, hvað úr því verður. Jeg braut minna, þegar jeg sió
búðar-mennina fyrir að hræða Maríu gömlu, og lá við að jeg sætti
fangelsi fyrir. Það er eins og jeg sje fæddur til að vera öllum til ills.
Það er enginn vafi á því, að æfi mín endar með skelfingu, og
það er betra að það verði nú en síðar. Fóstra min sagði mjer,
að jeg væri ekki nema til ílls á heimilinu, og úr báðnni
kaup-stöðunum hefi jeg verið rekinn fyrir drykkjuslark og óreglu. Og
- þó fannst mjer jeg hafa löngun til að vera heiðarlegur maður,
og jeg var búinn að einsetja mjer að verða það, ef jeg næði í
Onnu. En svo spilltu vondir menn og djöfullinn þvi. Hún sagði,
að það væri ekkert vit í, að bindast öðrum eins manni og jeg
væri, og svo rauf hún öll sín heit við mig, en lofaðist honurn.
Hann er lika ríkur, og gullið kaupir allt, jafnvel mannssálina. Og
svo verð jeg, sveitarómaginn, dáðleysinginn, fyllisvínið að iúta i
lægra haldi fyrir honum.
»Æfi mín er ekkert nema strið, endalaust stríð við sjálfan mig
og heiminn. Og allt af bið jeg ósigur, hvort heldur jeg berst við
sjálfan mig eða aðra. Og svo þetta síðasta — og versta. Nú er
allt farið. Mannorðið farið, — hafi það nokkurntima við mig
loð-að. Vinirnir farnir. Stúlkan töpuð. Öll von um atvinnu og
heið-arlegt lif á enda. Þvi ætli jeg sje að reyna til að lengja þetta vesæla
og tilgangslausa lif? Margur maðurinn hefir stytt sjer aldur.
Hvers-vegna geri jeg það ekki líka? jeg geri þá tvennt í einu: Losa
sjálfan mig úr klóm mannanna og losa mennina við slikt
óarga-dýr, sem jeg er.«
Han n stóð nú upp, skjálíandi af kulda, og gekk ofan hiiðina
og niður að sjónum. Par settist haan niður á blágrýtis-klöpp,
sem sjórinn skall upp að, og hjelt þar áfram hugleiðingum sinum.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>