- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
10

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

10

leitaði atvinnu hjá kaupmanninum, og kaupmaðurinn ljet tilleiðast
að taka hann og låta hann vinna í pakkhúsinu. Fyrst gekk allt
vel; Arni drakk ekki, og leysti verk sitt sæmilega af hendi. En
svo kom nýtt mótlæti fyrir: Hjá kaupmanninm var
innanbúðar-maður, er Einar hjet, sonur eins rikasta bóndans þar i firðinum.
Hann fór að venja komur sínar að Dal, og það leið ekki á löngu,
áður en fólk fór að stinga saman nefjum um, að hann langaði til
að eignast Dalsauðinn og Önnu með, og Bjarni gamli, faðir
henn-ar, væri því íylgjandi. Arni frjetti þetta og varð hugsandi útaf því.
Hann hafði mjög sjaldan tækifæri til að hitta unnustu sína; en
það þótti honum verst, að þurfa daglega að umgangast meðbiðil
sinn, som storkaði honum á allar lundir. I þessu ástandi tók hann
aptur að leita svölunar hjá Bakkusi, og voru góðgjarnar
kvenn-sniptir fljótar að bera þá frjett að Dal, að hann Arni væri aptur
lagst-ur í óstjórnlegan drykkjuskap. Agerðist nu óregla hans svo mjög,
að hann var rekinn úr vinnunni, og þóttist Einar þá hafa sigri
að hrósa.

Þar í kaupstaðnum var gömul kona og góð, sem Maria hjet.
Hún bjó ein í kofa, og lifði helzt á því, að þvo og hirða föt
lausamanna. Arni hafði nokkrnm sinnum talað við hana, og hún
hafði með góðum orðum haft þau áhrif á hann, að hann virti
rneira orð hennar en annara. Eitt kvöld, skömmu eptir að hann
missti vinnuna, varð honmn reikað inn til hennar og fór að tjá
henni raunir sínar. Þegar hann hafði stutta stund setið þar,
komu nokkrir búðarmenn og ætluðu að hafa það fyrir
kvöld-skemmtun, að glettast við Mariu. Þeir klifruðust upp á kofann
og tóku virstreng og ljetu skrölta innan i reykháfnum. María
var hjátrúarfull og hrædd, en Arni bað hana að vera hljóða. Voru
nú dyrnar opnaðar og kom fata full af vatni í hendingskasti
fram-an á hann. Hann þoldi ekki meira, en stökk upp og út, og fóru
svo leikar, að hinir urðu frá að hverfa. Morguninn eptir var
honum birt stefna og fundið það til saka, að hann hefði barið tvo
búðarmenn, svo á þeim hefði sjeð. Hann mætti fyrir rjettinum
og kannaðist við sekt sína, og var sektaður um tuttugu krónur,
þvi í rjettvísinnar augum hatði það enga þýðingu, þó hann segði.
að hann hefði verið að verja gatnla og lasburða ekkju fyrir
árás-um búðarstráka. María borgaði sekt hans, þvi sjálfur gåt hann
það ekki. Þessi saga tjekk fætur og var löguð svo í meðferðinni,
að hann átti að hafa barið mennina til stórskemmda, og hefði ef-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0016.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free