Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
19
Lífeins sólskin, skuggaskriðið
Skoðað, reynt og þekkt menn fá;
Eg hef glaðzt og líka liðið,
Lán og raunir skiptust á.
Ef að mjer var þungt í þeli,
Þessa stund það frá mjer veik;
Sól og ský á himinhveli
Hættið ei þeim fagra leik!
III. Stráin, sem stinga.
Stráin flest er stinga þig,
Styndu ei nje gráttu,
Vekja þig, en vinna ei slig,
Vinur kær! þau láttn.
Eins og spora allþarflig
Ætla víst þau mátttu,
Til að knýja á keppnis stig
Krapta. þá, sem áttu.
Stgr. Th
Framfærsla og sveitastjórn
á þ j ó ð v e 1 d i s t í m a n u m.
Fátt er það, sem meir þjakar íslenzkum búendum, en sveitarþyngsiin.
Þau eru sú landplága, sem einna mest stendur þjóð vorri fyrir þrifum.
Samkvæmt skýrslum um manntal á íslandi 1890 var rúmlega hver
þri-tugasti maður á öllu landinu sveitlægur þurfalingur (EIMR. III, 2), og
mun leitun á öðru cins ástandi hjá nokkurri pjóð. Það virðist liggja í
augum uppi, að þetta hljóti að nokkru leyti að vera fátækralöggjöf vorri
að kenna, en hitt mun aptur fáum jafnljóst, hverjir þeir aðalgallar eru
á henni, sem mest þörf er á að kippa i liðinn. A alþingi hafa komið
fram framvörp um endurskoðun á ýmsum atriðum í henni, en menn
hafa þar ekki getað orðið á eitt mál sáttir. Allir játa, að miklir gallar
sjeu á henni, en hitt greinir menn á um, hvernig eigi að ráða bót á
þeim. Er petta mjög eðlilegt, þar sem málið er eitthvert hið mesta
vandamál, sem kornið getur til þingsins kasta. En því meiri er þörfin
á því, að þetta mál sje athugað frá sem flestum hliðum í ritum og
ræðum, enda hefur nú margt verið um það ritað í blöðum vorum á
seinni árurn. Bezti vegurinn til þess að opna augu vor bæði fyrír
göll-unnm og í hverju umbæturnar helzt ættu að vera fólgnar, er sá, að
bera fátækralöggjöf vora sumpart saman við fátækralöggjöf annara landa,
þar sem ástandið i þessu efni er betra, og sumpart saman við vora eigin
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>