Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
23
og ala hann þar, eða að koma honum fyrir hjá öörum og gefa meö
honum (fela inni, selja til framfœrslu). Að því er snertir meðferð
ómag-anna, hvort sem þeir vóru hreppsómagar eða aörir, var það ákveðið, að
bændur skyldu ala þá eins vel og vinnufólk sitt og sjá þeim fyrir fötum,
og varðaði fjörbaugsgarð, ef út af var brugðið. Ætti hreppsómagi svo
illa aðbúð hjá einhverjum búanda, að honum yrði ekki við vært, þá
gåt hver sem vildi tekið ómaganti aö sjer og krafizt tvöfaldrar
með-gjafar af bóndanum. Pegar svo stóð á, aö einhver bóndi var ekki svo
efnum búinn, aö honum yrði gert að skyldu að ala ómaga heilt ár í
einu, eða ómagarnir vóru ekki svo margir, að þess gerðist þörf, þá var
eldinu skipt niður á menn, þannig að fleiri bændur áttu að ala sama
ómagann, og skyldi hann ganga milli þeirra og dvelja hjá þeim til
skiptis, ákveðinn tíma hjá hverjum, eptir því sem hreppstjórnarmenn
tiltóku samkvæmt efnahag hvers búanda. Þetta var kallað að fara i
hrepp og þess konar skiptingareldi för i hrepp, sem var allt annað en
almennt flakk, sem siðar skal getið.
Hvorugum hinum sveitargjöldunum, þurfamannatiund og matgjöfum,
var varið til ómagaframfærslu, heldur einungis til styrktar þurfamönnum.
rurfamannatiundin var 1/i af hinni almennu lögtiund, sem greiddist
eptir eiðfestu framtali af allri eign, löndum og lausum aurum, og var
hjer um bil i °/0 af eign manna, eða, þar sem hinir lögákveðnu vextir
af fje vóru 10 °/0) um 1/10 af vöxtunum. Allri lögtiundinni var svo
skipt í fjóra hluti, og fengu þurfamenn einn þeirra, en hina biskup,
kirkja og prestur. Pó átti þessi skipting á tiundinni sjer þvi að eins
stað, aö hún öll næmi einum eyri eöa meira, og var hún þá kölluð
skiptitiund. Næmi lögtíundin ekki fullum eyri, fengu þurfamenn hana
alla. Hreppstjórarnir (eða sóknarmennirnir) úthlutuðu
þurfamannatíund-inni og ákváðu, bæði hve mikið hver þurfamaður skyldi fá og hver
skyldi greiða honum það, og á-ttu þeir í því efni aö fara eptir þvi, hve
þurfandi hver og einn var. Purfamannatiundina skyldi greiöa í þess
konar munum, er þurfalingurinn gæti notað beinlínis til að bæta úr
skorti sínum, nefnilega: vaðmálum, vararfeldum, ull, gærum, mat eða
kvikfje, öllu nema hrossum (auðsjáanlega af þvi að hrossakjötsát var
bannað). Purfamannatíundina skyldi greiða á haustin (fyrir
Marteins-messu) eða i siöasta lagi næsta vor, þannig að hver einstakur gjaldandi
greiddi hana beinlinis þeim þurfamanni i hreppnum, er sóknarmenn höfðu
til tekið. Vanalega fengu þeir einir hlutdeild i þurfamannatíundinni, er
bjuggu i sjálfum hreppnum, en hreppsþingin gátu þó samþykkt að veita
ibúum annars hreppsfjelags hlutdeild i henni, ef jþeim virtist brýna
nauð-syn bera til, af þvi að þeir væru svo frámunalega bágstaddir.
Matgjafirnar stóðu í sambandi við föstu þá, er halda átti þrjá
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>