- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
25

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

25

bændur í þingsókninni eða fjórðungnum, er þingfararkaupi áttu að gegna.
Meö því að pessi hjeruð vóru svo stór og hinir eldisskyldu bændur því
svo margir í samanburði við ómagatöluna, varð þessu að eins við komið
með því að hafa skiptingareldi, þannig að ómagarnir skyldu fara á milli
bænda og dvelja sinn tímann hjå hverjum. Var það kallað för um þiug
og fðr i fjórðungi. Af því fjórðungurinn var svo víðáttumikill, máttu
fjóröungsmenn, ef Jjeim pótti það hentugra, skipta honum í smærri sveitir
til ómagaeldis, svo að ómagarnir þyrftn ekki að fara um allan
fjórðung-inn, heldur yrði visað á eldi hjá bændum, er byggju i einhverjum
ákveðnum hluta hans.

Til framfærslu landsómaga virðast menn að hafa varið einhverri
ákveðinni upphæð af lögrjettufjám eða þeim tekjum lögrjettunnar, er henni
guldust fyrir pau ýmsu leyfi, er hún veitti og annað þess konar. Reyndar
eru ekki í lögunum — eins og þau n ú liggja fyrir oss — nein bein
ákvæöi um þetta, en bæði virðist mega ráða þetta af þeim ákvæðum,
er í þessu efni giltu fyrir fjórðunginn og þingsóknina, og eins er það
ljóst, að menn hafa orðið að hafa ráð á einhverju opinberu fje til þess
að ala ungbörn og veik gamalmenni og aðra þess konar ómaga, sem
ekki varð gert að eiga för um landið; og þá virðist ekki um neitt
atinað opinbert fje að gera, er gripið yrði til aö borga eldi peirra með,
en einmitt lögrjettusjóðinn, sem var hinn eini landssjóður, er til var.
En annars áttu landsómagar för um land allt. Var þá hverjum bónda
skylt að gefa þeim einn málsverð, er pá bar að bæ hans, nefnilega
náttverðareldi, en, heldur ekki heimilt að gefa peim meira. Siðan gátu
þeir farið til granna hans og heimtað næsta málsverð. Þó mátti bóndinn,
ef honum sýndist svo, líka gefa peim landsómögura dagverð, er ekki
var skylt að fasta (yngri en 7 og eldri en 70 ára, þunguðum konum, og
stundum konum, er höfðu barn á brjósti), og eins á’öllum helgidögum.
Hann mátti og bæði hýsa og ala landsómaga meira en eina nótt, ef þeir
gátu ekki haldiö áfram för sinni sökum óveðra, af því ár væru ófærar,
eða aðrar slíkar tálmanir á leið þeirra.

VARNARRÁÐ GEGN SVEITARÞYNGSLUM. Auk þess sem menn
þannig höfðu sjeö um, að bætt yrði úr þurft fátæklinga, þegar hún átti
sjer stað, reyndu menn og á ýmsan hátt að verja menn fátækt, og þá
einkum að afstýra því, að alltof margir fátæklingar hrúguðust saman í
einum einstökum hrepp eða sveit. fannig varð hver sá bóndi, er flytja
vildi úr einum hrepp í annan, að biðja sjer byggðarleyfis hjá hlutaðeigandi
hreppsbúum. Pó varð honum eigi neitað um leyfið, nema hann hefði
annaðhvort orðið sannur að þjófnaði, eða að fjárhagur hans væri svo
bágborinn, að hætt væri við, að hann mundi þegar á næsta ári þurfa
að beiðast sveitarstyrks handa sjer og hyski sínu. Settist einhver að í

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0031.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free