Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
32
mökkinn víða, en sólin stafaði hann geislum sínum, og lagðist
hann því eins og íburðarmikið auglýsingaskjal yfir hina stórfeldu
sjón. Skipsskrokkarnir voru hinir glæsilegustu og kom
nýtízku-snið þeirra æ betur í Ijós, því nær sem dró landinu; allir drættir
voru þar hreinir, og litirnir skærir, og eptir því var útbúnaður
allur og yfirbragð. Suni hinna stærri skipa gnæfðu yfir hin skipr
in, eins og ríðandi hjarðsveinar yfir hjörð sína. Skot,
hljóðfæra-sláttur, fánakveðjur, stórkostleg litamergð, hávaði og fjölbreytni;
og svo voru þau óteljandi.
En þegar mesta forviða-fátið var afstaðið og menn höfðu
átt-að sig, virtist fjölbreytnin fremur liggja í smámunum, heldur en
því, sem meira er í varið; frumlögunin var jafnvel
tilbreytingar-laus. Þetta ásamt öðru fleiru gleymdist mönnum þó skjótt, sakir
þess, hve gífurlega ljóminn, hávaðinn, fegurðin, eða öllu heldur
stórfeldnin við uppsiglinguna stakk í stúf við .... hinn ömurlega
fána, er gat að líta á efsta siglutoppi fremsta skipsins; það var
sem sje hauskúpa. Og sami fáninn var á öðru skipinu, þriðja,
fjórða, fimta,.....! Og, þegar betur var að gáð, höfðu öll
skipin, bæði stór og smá, sama fánann, haushúpu með
krosslögð-um fótleggjum fyrir neðan i rauðum, hvítum, svörtum, og
gul-um feldi. Hauskúpan kom líka í ljós í skipsbúnaðinum; það
mátti sjá það í góðum sjónpípum. Augu áhorfendanna leituðu að
hinu glaðværa Frakklandi lengra undan landi; það hlaut þó að
vera með í förinni! Jú, þarna kom heill hópur skipa með
glæsi-legum litum; voru þar danslög leikin og bumbur barðar, þar gullu
bassalúðrar, klarínettur, flautur, hvað í kapp við annað, með
aust-rænum hljómblæ. Þarna kom hið glæðværa Frakkland! Ollum
varð litið eptir fánanum; það var dansandi beinagrind með sigð i
hendi, og hverri ljettúðardansmey óhæverskari í látbragði. Mikill
þó skolli! hugsuðu áhorfendurnir með sjer; þeir horfðu lengra út
eptir . . . hana nú, þarna sáu þeir loksins fir ðar, sterklegar skútur,
stórar og smáar. A fánann var dreginn hinn gallverski árgali;
var hann hreykinn af skæra litskrúðinu sínu og heilsaði dáðum
hróðugur upprennandi degi! Nú komu og í ós fánar settir
vor-blómum, og ijöldi glæsilegra jartegna; þannig gat þar að lita Sílen
meðal skógardísa, Amor sem skólakennara trjeskó, sjómannshatt
með blaktandi böndum, munkakufl, japanskan pappírslampa er vó
salt við kólúmbínugrimu, en veltiásinn var foringjasverð o, s. frv.
o. s. frv. En þegar þessi hinn mikilfenglegi floti hafði siglt fram
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>