- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
36

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

36

einskonar toppsegl, sem þeir drógu upp á knerri sínum. ür
honum sjálfum gjörðu menn skröksögupersónu, er átti í brösum við
djöfulinn, en bar þó jafnan hærra hlut.

Hinn ástsælasti maður nútímans, og ef til vill fremsti
önd-vegishöldur þjóðarinnar, er aptur skald, litlu yngra en Shelley og
Byron, Henrik Wergeland. Hann er einn af hinum stórfeldu
óðskáldum heimsins, en frægð hans, sem orti á tungu svo
fá-mennrar þjóðar, sem vjer erum, varð »örn við bjargið bundinn.«
En öllum, sem þessa tungu læra til að komast niður í hinum nýju
bókmenntum hennar, — það, sem fyrst ber þeim fyrir augu, er
hvita seglið hans, og logandi fáni í tíbrá yfir þvi. Hann er
holl-vættur nýnorska skáldskaparins, eins og hann er hollvættur
þjóð-arinnar. Draumar hans eru einkadraumar vors unga frelsis. Allt,
sem í því er auðugt af fyrirheitum, hefir fyrst fengið búning hjá
honum, eða hann hefir spáS því fyrir, eða gefið því blessun sina.
Hann dró landslagið upp; svo bætum vjer við, þar sem hann hætti.

Hafi sú þjóð, sem býr í hrjóstrugu landi, er hún verður ár
hvert að leggja undir sig á ný, ekki sigurvegarans örugga
hug-rekki, geti hún ekki flutt boðskap hollrar siðkenningar og
traustr-ar trúar á lífið, — þá er ekki góðs að vænta.

Hafi nýnorsku bókmenntirnar upp á siðkastið framleitt sitt af
hverju, er óheilbrigt mætti virðast, þá ber þó þess að gæta, að
hjá minniháttar rithöfundum hefir þetta átt rót sína að rekja til
óhollra útlendra áhrifa; en hjá einum mikilhæfum höfundi, sem
allir kannast við, er þetta eigi fyrir sjúkleika sakir, heldur er það
beizkt meðal; það eru andmæli gremjufulls anda, sem heldur upp
á sa-mveikislækningaraÖferðina. En yfir höfuð eru bókmenntirnar
heilbrigðar og glaðar í bragði. Einmitt hinir siðustu, sem nú eru
á uppsiglingu og eru svo atkvæðamiklir, að vjer höfum ástæðu
til að vænta margra á eptir þeim (í bókmenntum endar sem sje
aldrei neitt timabil á atkvæðamönnum), einmitt þeir eru hraustir
eins og fuglinn í loptinu og fiskurinn í sjónum.

Og það sem með rangnefni er kallað »þjóðkveðskapur« (rjett
eins og »þjóðkvæði«, og »þjóðlög« væru ekki að efni og formi
verk einstakra manna, engu síður en hver annar skáldskapur) —
hve auðugur er sá skáldskapur eigi af tápmiklu jafnvægi um leið
og hann er svo óumræðilega einkennilegur. í sumum æfintýrunum
er eins og vjer værum staddir í stórum skógi og heyrðum þar
bergmál lífsins umhverfis, glettnisfullt, en þó andríkt. í öðrum

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0042.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free