- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
47

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

47

í síðustu bók sinni setur hann stillilega en þunglega ofan í
við þann litla hiuta norska æskulýðsins, sem vóru svo kærulausir
um ættjörðina, að þeir gjörðust digurbarkaðir talsmenn
hnignunar-andans frá París. En eins í þessari bók sem öðrum lætur hann
skiptast á skin og skúr; hann miðlar þeim smámsaman því, sem
þeim ber. Hjer liggur enn sami mælikvarðinn fólginn í
frásögn-inni: Hvaða augum líta menn á konuna nú; hver er
sjóndeildar-hringur hennar sjálfrar núna? Þegar mælikvarðinn er iagður á,
verður niðurstaðan ekki eingöngu konunni í vil. Og þá ekki
þjóðfjelaginu heldur. En um leið og verið er að sprengja allt og
eyðileggja, er sem vjer finnum það á oss, að það sje vorið, en
ekki haustið, sem gengur í garð. Hjer er að spretta upp einhver
heilsusamlegur gróður, sem andar frá sjer eiturloptinu.

Jónas Lie gjörir aldrei neina útúrdúra; hann heldur sjer
grand-gæiilega við verkefnið. Nú skyldu menn ætla, að hjer væri festa
mikil i framsetningunni, en það er öðru nær. Sjaldgæft er það
og, að hann dragi margt saman á einn stað og bregði svo upp
skýrum myndum. Frásögnin líður hægt áfram þannig, að
hlut-irnir eru sýndir með smáum einkennis-dráttum, stundum
óvenju-lega fínum, að skýrt er meira eða minna ljóst og smellið frá ýmsum
atvikum, að gjörðar eru athugasemdir, sem tengja viðburðina saman,
og eru slikar athugasemdir jafnan lagðar einhverri af persónunum
í munn. Hjer kemur opt fram skringilegt, við gætum sagt
Ijúf-mannlegt vandræðafip, með þvi að vjer sjáum, hvar hann leitar fyrir
sjer, og lika ráðið til að komast áfram. Það er aldrei þar, sem
hverjum öðrum mundi verða erfitt fyrir; því erfiðara, þvi
auð-veldara. Það er þar, sem hver skussinn kemst yfir á trjeskóm;
þar situr hann fastur. Ekki liggur málið heldur laust í pennanum;
en það vinnur það, sem þvi er ætlað! Þegar frásögnin fer að siga
saman utan að þvi, sem er aðalatriðið, verða menn þess varir með
aðdáun, hve mikið hefur safnazt fyrir í kyrþey, og hve glöggt og
frjálslega persónurnar standa manni fyrir hugskotssjónum. Að
þessu stuðlar og það, að samtalið er látið kasta birtu á þær, likt
og hægt brennandi lampi með Ijóshlif að baki. Sjálfur stendur
hann ef til vill og horfir kátbroslega niður á linurnar; en linurnar
fá ekki leyfi til að hlæja. Þótt sál hans titri af gremju eða gleði,
— undir eins og þessi hugmóður fer að gjöra myndina hvikulli,
sendir hann nokkur hversdagsleg orð af stað, — og allt fellur i

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0053.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free