Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Si
En það var allt of mikið um matinn, allt of heitt, allt of kyrt;
peir þráðu kalt regn, úrigt lopt og svala storma.
Oteljandi hópar af grágæsum og svönum syntu fram og aptur, par
sem autt var innan um sefið, upp eptir hinum víttþöndu vöðlum; hegrar
og storkar gnæföu upp hjer og par; peir stóðu í kuðung á öðrum fæti
og hengdu nefiö; peim leiddist blátt áfram skelfilega.
Alls konar snípur og sundfuglar, vepjur, áflogakragar, andakóngar,
blesandir, lynghænur, svölur — já allt niður að rjettum og sljettum
stara,_— öllum leiddist peim, svo pað lá við þeir felldu fjaðrir.
Ibisinn hneyxlaðist á þessu útlenda, gráklædda hyski, og gjörði
jafnvel svo litið úr sjer, að kvarta um það við hinar heimsku flamingór,
sem hann annars bar svo djúpa fyriiiitningu fyrir. Krókódilarnir pírðu
slepjugu, ljósgrænu glyrnunum og glepsuðu við og við feita gæs, svo
að upp komu öskur og óbljóð, sem kváðu við upp og niður eptir
fljót-’nu, og hljóðnuðu langt—langt burtu; og kyrö eyðimerkurinnar lagðist
aptur yfir hið glóheita hjeraö og latan fuglagrúann, sem sat og var að
biða — peir vissu eiginlega ekki eptir hverju.
fá flaug grár smáfugl beint upp, nam par staðar eitt augnablik í
loptinu, baðaði vængjunum ótt og titt og tísti ofurlítinn lagstúf; að pví
búnu sje hann niður aptur og faidi sig i grasinu.
ÖÍl fuglaþyrpingin hafði lypt höföinu og var að hlusta á. Og svo
kom upp kvak og kliður og órólegt hark í hverjum kyma.
Ungirvepju-spjátrungar flugu upp og sveifluöu sjer í hring í loptinu, til að sýna, hve
vel þær flygi.
En trönurnar, sem fóru skynsamlega að ráði sinu, hjeldu aðalfund
til að íhuga ferðauppástungu lævirkjans. Pvi allir höfðu undir eins þekkt
lævirkjann á bljóðinu; pó það væru ekki nema tveir — þrír tónar, sem
hann haföi látið til sín heyra; söngurinn var ekki almennilega kominn
i barkann enn þá. En meðan trönurnar sátu á ráðstefnu, heyrðist
ótta-legt skvamp, og loptið varö almyrkvað.
Það voru grágæsirnar, sem tóku sig upp; pær skiptust í stórhópa,
svifu um í loptinu, fylktu sjer svo i langar raðir og hurfu norður á
bóginn, um leið og garg þeirra hljóðnaði i fjarska.
Stararnir flugu upp í svörtum breiðum og lögðu af stað, vepjurnar
á eptir; storkarnir skrúfuðu sig tveir og tveir hátt i lopt upp, unz þeir
nærri hurfu sjónum, og hjeldu svo norður á við. Aðalfundur trananna
fór alveg út um þúfur í þessu almenna vafstri og ringulreið; allir vildu
halda af stað, par varö engri ihugun viö komið framar; á hverri stundu
hjeldu nýir hópar út yfir Norður-Afríku ■— heilsandi hver með sinu nefi
brosandi bláa Miðjaröarhafinu fyrir neðan.
Næturgalakarlfuglarnir læddust af stað um nóttina í smáhópum; peir
vildu finna hina kunnugu staöi í rósarunnunum í Provence eða
beyki-skógunum á Sjálandi, svo að peir gætu haft fallegustu söngvana sína til
og verið búnir að æfa sig á peim, þegar kvennfuglarnir kæmu.
Norsku lævirkjarnir biðu í lengstu lög; en þegar dönsku lævirkjarnir
hjeldu af stað, fylgdust peir meö fyrir gamallar vináttu sakir.
Ferða-fíknin breiddist nú svo mjög út, aö jafnvel svölurnar og gaukurinn urðu
að halda af stað; pau vildu aö minnsta kosti fljúga vfir um
Miðjarðar-hafið; svo væri altjent hægt að hugsa sig um.
4*
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>