- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
62

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

62

frekur mjög og þó ósingjarn, elskar þá, sem ekki elska hann, og
bítur þá, sem elska hann. Hann er óttalegur erkiskrumari, sem
svo eptir á af andstyggð á sjálfum sjer lýgur upp á sig lýtum og
kömmum. Hann endar lif sitt sem ráðgáta, sjálfmn sjer og
öðr-um, fær sóttarflog og steypir sjer i hafið, sem kælir hann fyrir
fullt og allt. Þetta er vafið i moldviðrisbulli um allt, sem er og
heitir, frá hverjum kyma jarðarinnar og frá sólkerfunum í tilbót.
Lesarinn á á hættu að verða jafnörvita og hann. Stíllinn úir og
grúir af öðrum firnunum frá. Hann hrönglar upp tilgátum i
feikna stórum lögum, hverju ofan á annað, svo glæfralega að furðu
gegnir, hærra og hærra, svo vjer færum oss lengra og lengra
undan, til þess að fá það ekki allt saman beint ofan i höfuðið; —
stendur heima, svo stjakar hann við þvi með hnittyrði eða
fúk-yrði, og þá hrynur allt niður með hvínandi braki og brestum.
Og samt sem áður er »Leyndardómur« ein af miklu bókunum
bókmenntunum! Hún er eins og blindbylar, þar sem ofurmagn
kraptarins bregður á leik. Og hve örugg er uppreist hennar gegn
vanadiki smábæjarins! —

— Hjer vil jeg låta staðar numið. Jeg vil enda á þessari
óhemjulegu mynd hins ófullgjörva. A þann hátt virðist mjer
frarn-tiðin auðugust.

í öllum norska bókmenntaflotanum ekki ein einasta
skemmti-skúta; jafnvel þessi ærslaseggur hefur sitt ákveðna erindi. Það er
altjent eitthvað, sem hann vill losa oss við, eða sem hann vill að
viö skulum öðlast. Einnig hann finnur, að hann er ráðinn í
þjón-ustu ættjarðarinnar, sem verður með hverjum degi erfiðari. Norsku
bókmenntirnar birta það í verkum sinum, að þær vilja taka á sig
sinn hluta, stærsta hluta hinnar sameiginlegu ábyrgðar; að sú, bók
sem enga braut ryður, eða byggir þannig upp, aö hún auki máit vorn
og megin, gjöri oss einbeittari að komast niður í ]>eirri erfiðu íþrótt,
hvernig vjer eigum aö lifa, og þannig gjöri oss lífið Ijettara, er Ijeleg
bók, af hve mikilli list sem hún annars hann aö vera riiuö aö
bún-ingnum til.1 Það er aðeins og eingöngu til þess að fá að lokum
tækifæri til að segja heiminum þessi orð, að jeg hef tekið að mjer
að rita framanskráða bókmenntalýsingu, — einu
bókmenntalýsing-una, sem jeg hef nokkurntima skrifað og mun skrifa.

Að norsku bókmenntirnar yfir höfuð að tala — að undan-

’) Leturbreytingin er gjörð af mjer. ^YÐ.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0068.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free