- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
69

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

69

á brýn; þeir trúðu þvi fastlega samkvæmt kenningu Jesú Krists, að
náðar-boðskapurinn ætti að boðast öllum, bæði Gyðingjum og heiðingjum, því
að guð vildi að allir }’rðu sáluhólpnir og kæmust til þekkingar á
sann-leikanum (1 Tím. 2, 4). Þessi skoðun þeirra kemur fram hvervetna í
nýja testamentinu; jeg bið menn aö athuga t. a. m. þessa ritningarstaöi:
Post. gjörn. 1,8; 2, 39; 3,25; sbr. Matt. 28, 19; Lúk. 24, 47 og Matt.
8, 11. E11 það, sem þeir í fyrstu misskildu, var þetta, að þeir álitu, að
allir heiðingjarnir yrðu fyrst að låta umskerast og gangast undir að
hlýðnast Móselögmáli í öllum greinum, áður en þeir gætu meðtekið
skirn og gengið inn í hinn kristna söfnuð. Pað var þessi ranga skoðun
Pjeturs postula, sem Drottinn vildi leiðrjetta með sýn þeirri, er birtist
Pjetri.

Að bera hinum fyrstu kristnu mönnum á brýn kærleiksleysi, hefi
jeg engan heyrt gera nema síra V. i þetta sinn; jeg hefi þvert á móti
ávallt heyrt til þess tekið, hve hinn kristilegi kærleiki hafi blómgazt
meðal þeirra; hinn fyrsti kristni söfnuður hefir alltaf verið talinn
fyrir-mynd allra manna einmitt hvað kærleikann og kærleiksverkin snertir.
Hjá þeim var trúin eigi köld játning varanna, heldur lif helgað Jesú
Kristi, drottni vorum, líf eptir hans dyggðadæmi, lif eptir hans boðum
og kenningu, sjálfsfórnunar-, en ekki sjergæzku lif. Pess vegna gáfu
þeir jafnvel aleigu sina og enginn sagði það að vera sitt, er hann átti;
því að allur söfnuðurinn var eitt hjarta og ein sál (Post. gjörn. 4, 32).
Til þess að sannfæra menn um, hve röng þessi ákæra er gegn hinum
fyrstu kristnu mönnum, þarf jeg eigi annað en biðja menn að lesa kvæði
síra V. sjálfs í Biflíuljóðunum um »hinn fyrsta söfnuð« (bls. 348); í því
kvæði er höf. samdóma nýja testamentinu, og kemst hann þannig i
mót-sögn við sjálfan sig. Hin skarpa aðgreining á trú og kærleika, í sömu
merking og nú tíðkast, átti sjer ekki stað i hinni fyrstu kristni; trú án
kærleika var ekki talin sönn, kristileg trú. Pað er einmitt gegn slikri
skoðun, að Jakob talar i brjefi sinu, og þótt einhvers staðar á Sýrlandi
hafi komið fram sú skoðun meðal kristnaðra Gvðinga, að viðurkenning
hinna kristilegu sanninda i oröi væri kristileg trú, þá getur sira V. ekki
borið bínum fyrstu kristnu mönnum og Pjetri postula slikt á brýn.
Frá-sagan um Kornelius i Post. gjörn. 10. kap. gefur enga ástæðu til sliks,
heldur þvert á móti. Enginn kapítuli í nýja testamentinu sýnir oss
betur nauðsyn trúarinnar á Jesú Krist til sáluhjálpar, en sá kapítuli, sje
hann lesinn til enda.

Pað mun ekki eiga við að fara lengra út i þessa sálma hjer;
E1M-REIÐIN hefir hingað til ekkert trúvarnarrit verið. En það hrj’ggir mig,
að annað eins erindi og þetta skuli standa í þessu kvæöasafni, sem mjer
fyrir margra hluta sakir er svo kært, þótt jeg geti ekki neitað því, að
mjer hafa brugðizt vonir minar, hvað sum kvæðin snertir i þessum
siöara parti.

Prátt fyrir þessa galla á einstöku kvæðum, má óhætt fullyrða að
Bifliuljóðin sjeu i heild sinni stórmerkileg bók, og einhver hin
lang-merkilegasta í bókmenntum vorum. Það er mikið þrekvirki að hafa
afkastað sliku, og einkum þegar þess er gætt, aö höfundurinn er prestur,
sem situr á fremur rýru sveitabrauði, og hefir ekki einu sinni fengið
tækifæri til að kynna sjer menntalíf annara þjóða öðruvisi en af bókum;

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0075.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free