- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
71

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

7i

fylkingar meðal bókmenntaþjóðanna. En hvernig nú er koniið fyrir
okkur eða hvort við nú eigum nokkrar bókmenntir, um þaö vita fæstir
mikið. Þaö er heldur varla von, jafnmiklir og örðugleikarnir eru á þvi,
að kynnast bókmenntum vorum. Þó einhver kynni að hafa komizt á
snoðir um, aö eitthvaö kynni aö vera á þeim aö græða, þá þykir
fæst-um tilvinnandi aö hafa svo mikiÖ fyrir að kynnast þeim, að veröa að
læra örðugt mál, sem ekki er talað og ritað nema af rúmum 70,000
sálum á útkjálka heimsins. Og það þvi fremur sem örðugleikarnir eru
enn meiri fyrir þá sök, að ekki er til nein fullkomin oröabók yfir
nútíðar-mál vort. Én nú er þvi svo varið meö hverja einstaka þjóð — eins og
með hvern einstakan mann —,
aö henni þykir vænt um, að
tekið sje eptir sjer og því, sem
gott er i fari hennar. En eitt
af þvi bezta, sem við eigum til,
eru einmitt bókmenntirnar okkar,
og þær einkenna okkur meira
en nokkuð annað sem þjóö. Viö
megum þvi sannarlega vera
þakk-Iátir, þegar einhver tekur sjer
fyrir hendur að vekja athygli
stórþjóöa heimsins á þeim; ekki
sizt, þegar þaö nú lika er gert
með góðvild og samvizkusemi,
samfara þekking og lærdómi.

Hjá engri þjóð hafa
nútiðar-bókmenntir okkar vakið eins
mikla eptirtekt eins og hjá
f>jóð-verjum. Auðvitað er þetta
ein-stökum mönnum aö þalvka, og
þá fyrst og fremst hinum ágæta

fræðimannaöldungi, prófessor
Konr. Manrer, sem viö eigum
svo margt að þakka. Pýzkaland
missir mikið, þegar hann fellur
frá, en Island missir pó meira.
Lengi var hann hjer um bil eini maðurinn á þýzka tungu, sem nokkuð
vissi um hagi vora og nútiðarbókmenntir. En svo fór þeim smátt og
smátt að fjölga. Frækornin, sem hann hafði sáð, tóku að bera ávexti
meðal hinnar yngri kyrislóðar. Um 1880 byrjar Poestion að ríta um
bókmenntir vorar og 1885 ritar hann ágæta bók um land vort og þjóð.
Sama árið (1885) gefur dr. Sckiueitzer út bók sina um Island og skömmu
síöar bókmenntasögu sína. 1889 gefur Baumgartmr út sina bók um
Færeyjar og Island og um sama leyti byrja Lehmann-Filhés og Küchler
aö gefa út þýöingar sinar úr islenzkum ritum og ýmislegar ritgerðir um
Island, sem pau jafnan siöan hafa haldiö áfram. Þá kemur dr. Aug.
Gebhardt og prófessor A. Hausler og aö lokum hafa Richard von Kraliks,
Louise Breisky, Aug. Seuffert og prófessor Hugo von Meltzl pvtt ýms íslenzk

I. C. Poestion.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0077.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free