- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
77

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

77

óefað bezta sagnaskáldið okkar, sem nú er á Iífi, og gæti sem slíkur gert þjóð
sinni stórmikið gagn, ef honum yrði gert mögulegt að beita kröptum sínum
til þess. Pvf enginn hefur önnur eins tök á að laga hugsunarhátt þjóðarinnar
eins og sagnaskáldið. En ætli verði ekki likt farið með hann og Gest heitinn
Pálsson. Þegar hann blásnauður sótti um Htilfjörlegan styrk til alþingis, til þess
að geta haldið áfram að rita sögur sínar, þá var honum neitað um þetta og
hann hrakinn af landi burt til Araeríku, þar sem hann dó í hálfgei’ðu volæði.
En nú, þegar búið er að þýða sögur hans á mörg önnur mál og heimsfrægir
höfundar dást að þeim, — þá sjá menn fyrst, hvílíkt glappaskot menn hafa gert!

JÓN ÓLAFSSON: LJÓÐMÆLI (1866-93). 3- útgáfa aukin. Rvík 1896.
Fvrsta útgáfan af kvæðum þessum kom út á Eskifirði 1877 og seldist á fám
ár-um. Önnur útgáfa þeirra var prentuð í Winnipeg 1892, en glataðist skömmu
síðar í húsbruna, og eru kvæðin því nú gefin út í þriðja sinn. Eru í henni
flestöll liin sömu kvæði og í 1. útgáfunni, en við bætt rúmum fjórðungi firam
yfir það, sem var í henni. Er þetta safn alls 216 bls. í litlu broti, en
drjúg-lega prentað, og fylgir mynd höfundarins kvæðunum. Oviðkunnanlegt er það
og miður heppilegt, að athugasemdir og skýringargreinar eru opt með sama
letri og sjálfur texti kvæðanna (t. d. á bls. 67—70 o. s. frv.). Annars er hinn
ytri frágangur allgóÖHr, þó liann heföi auðvitað getað verið betri, og raörg
kvæð-anna átt skilið, aö svo hefði verið.

Jón Olafsson hefur aldrei verið við eina fjölina felldur, og þetta lýsir sjer
líka í kvæðum hans. Þar kennir margra grasa, er sýnir fjölhæfni hans og
marg-breytni. Hann er nokkurnveginn jafnvígur á allt, hvort sem hann kveður
alvar-leg kvæði, ástaljóð, minningarljóð, herhvatir, vandlætingakvæði, eða fyndin
gaman-kvæði og hálfgerð m’ðkvæði. En þó er mikill raunur á því, hve vel honum
tekst upp. Langbezt eru þau kvæði, sem hann hefur hveðið ura tvitugt eða þar
um bil; irá hinum síðari árum eru engin kvæði, er komist til jafns við þau. Pó
hann sjálfur kunni að álíta (sbr. eptirinálann), að sum þeirra (t. d. »Til gamals
manns«, »Ný Bjarkamál«, »Ættjaröarminni Vestur-íslendinga«, og »Opið
sendi-brjeft) sjeu jafnokar eldri kvæða hans af líku tægi, þá er það ekki svo. I
kvæð-um þessura eru að vísu framsettar margar snjallar og ágætar hugsanir; en þau
eru miklu fremur þarflegar hugvekjur, en hrífandi skáldskapur. Þau eru ávöxtur
af glöggskyggni og rólegri, skynsamlegri yfirvegun, en vantar þennan ósýnilega
neista eða tundur, sem læsir sig inn í hug og hjarta lesandans og hrífur hann
með. En þessi neisti er einmitt í mörgum af hinum eldri kvæðum hans. Frá
þeim streymir eins konar rafmagn yfir í lesandann, sera hleypir titringi í taugar
hans og æsing í blóð hans. Munurinn liggur auðsjáanlega í því, að hin eldri
kvæði eru kveðin af miklu dýpri og sterkari tilfinmng og hafa því einnig meiri
áhrif á tilfinning lesandans. En það er alkunnugt, að tilfinningin er langt ura
sterkara afl en skynsemin. Og einmitt af því aö skáldin hafa betri tök á
tilfinn-ingunni en flestir aðrir, einmitt þess vegna geta þau haft meiri og víðtækari áhrif
en aðrir. Tilfinning Jóns Olafssonar kemst ekki á hæsta stig í ástaljóðum hans
eöa saknaðarstefjum, heldur einmitt í hinum »pólitisku« kvæðum hans, ef svo
má kalla. Og þau eru líka hans beztu kvæði. Þessi kvæði (t. d.
»íslendinga-bragur«, »Kveðja til íslands« (I—II), »íslendingahvöt«, »Áfram«, »Tiðamót«,
»Eldgosið«, »Til þjóðfundarmanna á Þingvelli« o. s. frv.) hafa óefað haft mikla
þýðingu og mikil áhrif á hinn uppvaxandi æskulýð landsins. Um það geta þeir
borið, sem hafa lesið þau ungir. Það geta verið skiptar skoðanir um það, að

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0083.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free