- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
87

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

87

ur en hann varð liður í stórum hóp. Hjer kemur fram
sálareig-ind, sem sálarfræðingar seinni tíma hafa einkum vakið eptirtekt á,
sem sje hin undarlega hermihvöt, sem allir menn eru gæddir og
kemur einkarljóst fram hjá börnunum, en ræður reyndar miklu
alla æfi manns. I manngrúanum, þar sem einstaklingurinn og
manngildi hans svo að segja máist af, eins og áður er sagt, og
hverfur inn i múginn, verður hvöt þessi margfalt sterkari. Ef
ein-hver tekur upp á því að hrópa húrra, klappa höndum, hrópa »lifi
konungurinn« eða »niður með konunginn«, hafa hinir það á
svip-stundu eptir, hrifnir af hermihvöt sinni, og ef nokkrir fara að mynda
sig til, annaðhvort að votta einhverjum vini hollustu sina eða brjóta
rúður hjá óvini sínum, fylgja allir hinir aðrir einstaklingar í
hópn-um eins og sauðahjörð, enda þótt þeir hver um sig í einrúmi
mundu í mesta máta låta sjer slíkt athæfi miður lika.

Þá er enn hið þriðja atriði, sem telja má orsök til þess, að
sjerstakar eigindir myndast hjá múgnum; það er atriði, sem
líf-eðlisfræðis og sálarfræðis rannsóknir nýrri tíma hafa að vísu ekki
getað skýrt til hlítar, en þó veitt oss mikilvæga vitneskju um.
Þetta atriði er móttækileiki fyrir hinn svonefnda
hugsanainnblást-ur, sem er einkennilegur fyrir sálarlif vort, og að miklu leyti
orsök til geðsnæmisins, er jeg minntist á.

Móttækileikinn fyrir áhrif frá öðrum, til að snúast að
skoð-unum og dó’mum. þeirra, hefur einkum gefið tilefni til nánari
vis-indalegra rannsókna, siðan tekið var að rannsaka hina svonefndu
dáleiðslu. Svo sem flestum lesendum mun kunnugt, má með því
að dáleiða menn, koma þeim i það ástand, að þeir missi algjörlega
meðvitundina um manngildi sitt, hlýði öllum skipunum
dávalds-ins og fremji verk, sem gagnstæð eru lyndiseinkunnum þeirra og
og venjum. Það hefur nú hins vegar komið i ljós, að menn
þurfa alls ekki að vera í dáleiðslu til þess að vera móttækilegir
fyrir áhrif frá öðrum og låta leiðast af þeim; miklu fremur hefur
það komið fram við nánari rannsóknir, að mjög mikill þáttur af
upp-eldinu, ekki einungis á barnsaldrinum, heldur og langt fram eptir
aldri, er fólginn í slíkum siendurteknum áhrifum, sem ásamt
hermi-hvötinni ef til vill mynda blátt áfram lyndiseinkunnir manna og
hegðun, þótt þvi verði ekki neitað, að meðfæddir sálarhæfileikar
eigi og mikinn þátt i, hver niðurstaðan verður. Danskt barn er
svo að segja frá því það fæðist uppalið og menntað til að verða
Dani, barn, sem fæðist á Frakklandi, til að verða Frakki, og þó

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0101.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free