- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
86

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

86

slitum, er samkoma andlegra amlóða gæti gjört; í hópnum koma
aðeins hinar lægri eigindir til greina, sem andlegir fáráðar eiga
engu síður en þeir, sem betri gáfum eru gæddir. I miignum og
og margmenninu eru það ekki hinir andlegu yfirburðir, sem vaxa,
heldur miklu fremur heimskan. Mtigurinn, sem heiðraður er með
nöfnum eins og »almenningsálitð«, »hver maöur«, o. s. frv., hefur
ekki altjent rjettara fyrir sjer en hinn sjálfstæði
hugsunarskörung-ur, er vekur athygli á því, með hve litlum rjetti þessi nöfn eru
viðhöfð; hann hefur þvert á rnóti betra skyn en »almenningsálitið«,
eða »rödd þjóðarinnar«, með þvi að hann getur sýnt fram á, að
þessi hugtök eru í raun og veru ekkert annað en öfgafull nöín á
hvikulum múg.

Ef nú einstaklingarnir, er mynda slikan hóp, gjörðu aðeins
að slá saman þeim algengu eigindum, er hver þeirra hefur, mundi
niðurstaðan verða meðalgildi þessara eiginda; en aptur á móti
gætu þá ekki hinar nýju eigindir, er áður var á minnzt, komið
fram. Látum oss nú líta á, hvort vjer getum ekki sýnt fram á,
hvernig þessar nýju eigindir myndast.

Að slíkar lyndiseinkunnir, sem einkenna múginn, koma fram,
á rót sína að rekja til margra orsaka. Fyrst og fremst er það, að
hverjum einstakling, er staddur er i manngrúa, finnst eins og hann
ráði yfir ómótstæðilegu afli, blátt áfram af því, hve margir eru
þarna saman komnir, og þetta leiðir til þess, að hann gefur þeim
ástríðum sínum lausan taum, sem hann mundi af fremsta megni
reyna að bæla niður, væri hann einn sins liðs; hann leggur því
síður hömlur á sig, sem hann finnur, að hann er liður í
nafn-lausum, ópersónulegum og ábyrgðarlausum manngrúa, og sú
ábyrgðartilfinning, sem jafnan heldur einstaklingnum aptur,
hverf-ur með öllu.

Onnur orsök til þess, að sjerstakar eigindir koma fram, er —
geðnæmi. Að einstaklingar, sem staddir eru i manngrúa, verða
fyrir geðnæmum áhrifum, er auðvelt að sýna fram á, þótt örðugt
sje að skýra, hvernig á því stendur. Þegar menn hafa safnazt
saman i hóp, verður hver tilfinning og athöfn geðnæm, og það svo,
að einstaklingurinn lætur auðveldlega sjálfs síns hagsmuni sitja á
hakanum fyrir sameiginlegum hag annara. Það, sem hjer er um að
ræða, líkist mjög ástandi þvi, er dávaldur getur komið hinum
dá-leidda í; einstaklingurinn sýnir þægð og tillátssemi, sem ef til
vill er algjörlega á móti eðlisfari hans, og hann alls ekki gat áð-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0100.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free