- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
90

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

9o

fjelagsstjórn lof í lófa, sem ef til vill hver einstakur fjelagsmaður
álítur að gangi hneyksli næst, að låta sitja að völdum; þessi dæmi,
er vjer hjer höfam tilfært, getur hver maður auðveldlega gengið úr
skugga um. A dögam stjómarbyltingarinnar miklu á Frakklandi,
sátu á »þjóðþinginu«, er vann svo raörg blóðug og órjettlát
hermd-arverk, vel menntaðir borgarar, er hver um sig var kunnur að
friðsemi og mannúð; en þegar þeir voru komnir í hóp og
undir-orpnir hinum undarlegu áhrifum, er vjer höfum minnzt á, hikuðu
þeir sjer, þrátt fyrir allt, ekki við að låta hálshöggva þá menn,
sem allir vissu að voru saklausir, eins og þeir, sjálfum sjer til
skaða, voru hver upp á móti öðrum og ljetu taka af lífi nokkra
af sínum eigin mönnum, þótt þeir hefðu sjálfir samþykkt, að
þjóð-þingsmenn skyldu vera friðhelgir.

En það er ekki aðeins í verknaðinum að emstaklingurinn
verður allur annar í múgnum, en þegar hann er einn síns liðs.
Aður en hann hefur misst sjálfstæði sitt, breytast hugmyndir hans
og tilfinningar, og þessi breyting er opt svo algjör, að hinn nízki
verður eyðsluseggur, efunarseggurinn trúaður, rjettlátur maður
bófi, löðurmeimið hetja.

Það hefur verið sagt, og er opt sagt enn þá, að
sannleikur-inn sje fólginn í því, sem þjóðin þá og þá álíti gott og gilt;
get-um vjer nú samkvæmt því, sem sagt er hjer að framan, haldið
því fram, að »rödd þjóðarinnar sje rödd guðs« ?

Af því, sem hjer að framan ei* sagt, getum vjer dregið þá
ályktun, að maðurinn stendur ætíð á lægra stigi, að því er
vits-muni snertir, þegar hann er 1 múgnum, en þegar hann er einn.
A hinn bóginn skal það játað, að múgurinn er ekki ætíð
áfellis-verður; það er allt undir því komið, hverju honum er blásið í
brjóst-, og það nær engri átt, að skoða múginn sem flokk
illræðis-manna, eins og sunnr höfundar hafa gjört. Að vísu getur
múgur-inn opt hegðað sjer glæpsamlega, en hann getur líka stundura
unnið afreksverk. Það er þrátt fyrir allt eitthvað mikilfenglegt í
því, að slíkur múgur getur gengið í dauðann fyrir trúna eða frelsið.
Eptir því sem sagt er hjer að framan, verðum vjer að álíta, að
honum sje þetta ósjálfrátt; hann vinnur þess konar hreystiverk
ósjálfrátt; en það eru þó þess háttar hreystiverk, sem mynda
sög-una. Eins og hvert annað atriði, er litur að hinu dularfulla
sálar-lífi mamia, hefur og þessi skýring á þvi, hvernig einstaklingurinn
hverfur inn i múginn og nýjar lyndiseinkunnir myndast við það,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0104.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free