- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
91

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

7i

mikla þýðingu. Einkum mun hún opna augu mamia fyrir þvi,
hve ósatt hið gamla orðtak »Vox populi, vox dei« er, og gjöra
menn varkárri í því að telja allt satt, sem hið svonefnda
»almenn-ingsálit«, »þjóðin«, »meirihlutinn« og yfir höfuð »menn« álíta.

Almenningsálitið verður þá fyrst sannleikanum samkvæmt,
þegar einstaklingar mannfjelagsins hafa aflað sjer svo mikils
mann-gildis og lyndisfestu, að múgurinn hefur ekki framar áhrif á þá,
svo að þeir geta haft og haldið fast við ákveðna og óbifanlega
skoðun sjálfra sín; þá fyrst verður fengin full trygging fyrir
rjett-mæti þingbundinnar stjórnar, þar sem múgurinn hefur æðsta
úr-skurðarvald; en því miður verður þess lengi að bíða, að hið
hvikula, sviplynda mannkyn fái að búa við svo glæsilegan liag.

Þýtt hefur

G. F.

Örn og lævirki.

(Eptir Riickert).

O að eg fengi

Sem flugsterkur örninn

Sveiflast mót rísandi sólu,

Djúpt inn i dagroðann

Dýft minni bringu

Og baðað mig bjartlopts í straumi,

Og meðan enn myrkfara

Mókir í djúpi,

Sogið frá vaknandi

Sólauga himins

Hið fyrsta tindrandi tillit!

Eður sem ljettfleygur
Lævirkinn fengi’ eg
Fylgt eptir sígandi sólu,
Hátt yfir fold
A friðsælu kveldi,
Og eyglóar síðgeislum
Yfirskininn

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0105.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free