Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
107
í Fornmannasögunum (II, 222—8) er þriðja frásögnin um annað
óáran, er varð 10 árum seinna (985), og svipar henni mjög til hinna.
Er þar fyrst sagt, aö þá hafi gerzt svo mikið hallæri á Islandi, að fjöldi
manns hafi dáið af sulti. Þvi næst er sagt frá þvi, að mikilsháttar
maður einn í Skagafirði, er hjet Svaði, hafi einn morgun kallað saman
marga fátæka menn og boðið þeim að gera eina míkla gröf og djúpa
skammt frá almannaveg. Urðu hinir fátæku pessu mjög íegnir, því þeir
vonuðust eptir að fá svo mikiö fyrir vinnu sina, að þeir gætu slökkt
hung-ur sitt. En um kveldið, er þeir höfðu lokið grafargerðinni, leiddi Svaði
þá alla í eitt litið hús, og byrgði síðan húsið og sagði þeim að næsta
morgun skyldi þá drepa og jarða í þeirri miklu gröf, er þeir hefði sjálfir
gert (sem líklega á að skiljast svo, að hann ætlaði að grafa £>á lifandi
og låta þá deyja í gröfinni). Þetta fór þó á annan veg en ætlað var,
þvi svo bar til, að Porvarður hinn kristni Spakböðvarsson fór sömu
nóttina um hjeraðiö að erindum slnum; og lá leið lians snemma um
morguninn fram hjá húsi þvi, er hinir fátæku menn vóru í imiibyrgðir;
’beyrði hann jþá kveinstafi þeirra og spurði, hvað þeim væri aö angri.
En er hann varð hins sanna vis af þeim, bauðst hann til að frelsa þá
og fæða þá alla á búi sínu meðan hallærið stæði, ef þeir vildu taka
kristni og trúa á sannan guð. Það kváðust hinir fátæku gjarnan vilja,
og tók þá Þorvarður slagbrandana frá dyrunum og hafði fátæklingana
heim með sjer og Ijet þar skíra þá og kenna þeim heilög fræði.
»Á þeim sama tíma, sem nú var áðr frá sagt, var þat dæmt á
samkvámu af héraðsmönnum, at fur sakir sultar ok svá mikils hallæris
var leyft at gefa upp gamalmenni ok veita enga björg, svá þeim, er
lama váru eðr at nökkuru vanheilir, ok eigi skyldi hcrbergja þá«. Og
þetta skyldi jafnt gilda um foreldra og nánustu ættingja, sem aðra, er
þeir vóru svo hrumir, að þeir gátu ekki framar álitizt að vera til gagns
fyrir mannfjelagið. Og þegar þetta var samþykkt, »gnúði á hin
snarp-asta hríð með gnístandi frostum«, svo auðsætt var, að þessir
hjálpar-lausu veslingar ættu dauðan visan, er þeir vóru þannig reknir út á
gadd-irin. En er helzti höfðinginti í sveitinni, Arnór kerlingarnef, kom heim
af samkomutitii, gekk móðir hans, Þuriður, fyrir hann og hjelt yfir
honum þrumandi ræðu, og leiddi honum fyrir sjónir, »hversu úheyrileg
og afskapleg úmennska þat var, at maðr skyldi selja i svá grimman
dauða föður ok nióður eðr aðra náfrændr«. Pessi ræöa kerlingar liafði
svo mikil áhrif á Arnór, »at hann sendi sina beiniamenn á næstu bæi
at samna saman öllu gamalmenni ok þvi, er út var rekit, ok flytja til
sin, ok lét J)á næra með allri likn«. Daginn eptir stefndi hann svo
aptur til fundar og hjelt þar langa ræðu fyrir bændum, þeim er hann
hafði yfir að ráða, og kvað þá skyldu sæta afarkostum af sinni hálfu,
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>