- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
106

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

io 6

vóru því fæstir sem óskuðu sjer aö ná hárri elli, heldur miklu fremur
óttuðust það sem hvert annað böl. Ein gömul saga bendir jafnvel á,
að það bafi fyr á öldum, áður en sögur hófust, ekki verið neitt
sjer-lega sjaldgætt, að fátækir foreldrar hafi, til þess að verða ekki börnum
sinum til þyngsla, ráðið sjer sjálf bana með því aö kasta sjer niður af
háum hamri, sem af þvi fjekk nafniö œtUrnisstapi (sbr. »að ganga fyrir
ætternisstapa«). Er sagt að þetta hafi verið siður í Gautlandi hinu vestra,
og er varla ástæða til að skoða þá frásögn sem bábilju eina. Það var
sem sje viðar siður en á Norðurlötidum í heiðni, að losa sig við veik
og örvasa gamalmenni með þvi að lóga þeirn eða låta þau sjálf
fyrir-fara sjer, því það hefur verið sýnt fram á, að slikt var líka siður hjá
Vind-um og á Norður-Pýzkalandi. Sömuleiðis segir Plinius frá þvi um
Hyber-bóreana, að það hafi verið siður hjá þeim, að gamalmenni fyrirfæru sjer
með þvi aö steypa sjer niður af háum hamri. Þar er þvi getiö um sama
siðinn sem i hinni norrænu frásögu, og hinn frægi sagnaritari Geijer
segir í Sviasögu sinni, að i Svíþjóð sjeu til margir hamrar, er enn beri
nöfn, sem bendi á þennan sið.

Lítum vjer nú sjerstaklega til Islands, þá bera sögurnar þess vott,
að menn hafi þar allt fram að lokum 10. aldar álitið það fullkomlega
leyfilegt, þegar menn vóru í þröng, að losa sig við hrum gamalmenni
með þvi að fyrirfara þeim eöa öllu heldur með þvi að »gefa þau upp«,
sem svo var kallað, sem hlaut að leiða til þess, aö þau dæju úr sulti,
ef þau urðu ekki fyrri til að stytta sjer sjálf aldur. En
mannúðarand-inn var þó þegar á þeim tima búinn að fá svo mikil tök á hugum
manna, að menn tóku ekki til slíkra örþrifráða, nema menn væru í
hin-um mestu kröggum; og jafnvel þó svo stæði á, urðu þó ætið
ein-hverjir til að rísa á móti þessum ómannlega villisið.

Arið 975 gerði »óaldarvetur mikinn« á íslandi og hjeldu þá
Reyk-dælir fund hjá Ljóti hofgoða, til þess að ráðgast um, hvað gera skyldi,
til þess að afstýra alménnu hallæri, og sýndist mönnum ráð aö »heita
til veðurbata«. Vildi Ljótur låta heita að gefa til hofs, en bera út börn
og drepa gamalmenni. En öðrum manni, Áskatli, pótti það ómælilegt
og kvað engan hlut batna mundu við það; kvað hann ráðlegra mundu
að gera skaparanum tign i þvi, að duga gömlum mönnum, og leggja
þar fje til, og fæða upp bömin. Móti þessari uppástungu mæltu margir
i fyrstu, en þó lauk svo, að Áskell rjeð. Frá þessu er sagt i
Reyk-dælu (7. k.), en í Landnámu (bls. 323) er önnur frásögn um ástand
landsins almennt þetta sama ár, og segir þar, að þá hafi verið svo hart
\ ári, að »þá átu menn hrafna ok melrakka, ok mörg óátan ill var etin,
en sumir létu drepa gamalmenni ok ómaga, ok hrinda fyrir hamra; þá
sultu margir menn til bana« o. s. frv.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0120.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free