- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
119

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

ii9

átta sig á málunum, og geti jafnvel aldrei áttað sig fullkomlega á
sumum þeirra. Af þessu leiðir, að þingmenn vorir verða í hvert
sinn að fara svo heim af alþingi, þó leiðinlegt sje, að þeir vita
ekki. hvort nokkur eða enginn árangur verður af þingstörfum
þeirra, hvort nokkurt eða ekki neitt af lagaboðum þeim, er samin
hafa verið á þinginu, verði samþykkt. Og svo verður þjóðin að
biða railli vonar og ótta mánuð eptir mánuð, og jafnvel missiri
eptir missiri eptir þvi, að lögin annaðhvort verði staðfest eða
þeini synjað um staðfestingu. Þessi fráleita bið er til hins mesta
niðurdreps fyrir allt þjóðfjelagslif í landinu. Þegar svo loksins
seint og siðar meir, eptir langsaman tíning og reyting, fleiri eða
færri af lagafrumvörpum alþingis eru komin aptur undirskrifuð af
konungi og ráðgjafa, þá fá menn að heyra, að þau og þau
laga-frumvörp geti eigi fengið staðfesting, af þvi að ráðgjafinn hafi
skilið þau svo og svo, jafnvel þótt engum þingmanni, og ekki
sjálfum erindsreka ráögjafans á alþingi, landshöfðingjanum, kæmi i
hug eða hjarta, að sá skilningur lægi i frumvörpunum.

Að ætlun vorri er enginn galli á stjórnarskrá vorri
eins tilfinnanlegur eins og þessi, og hefði hann eigi
verið, mundum vjer hafa getað verið nokkurnveginn
ánægðir með hana. Þessi langi dráttur og vafningur á afgreiðslu
málanna, þessi vaíi og ef til vill misskilningur milli þingsins, er
sernur lögin af þjóðarinnar hálfu, og stjórnarherrans, er, eins og
vjer áður drápum á, til eyðileggingar voru þjóðfjelagslífi. Til að
bæta úr þessu er j)að með öllu nauðsynlegt, að hinn sami
mað-ur, sem kemur fram af hendi stjórnarinnar á alþingi og tekur
þátt í undirbúningi lagafrumvarpanna, beri pau upp fyrir konungi
til staðfestingar og undirskriíi þau með honum svo sem
stjórnar-herra með ábyrgð.«

Af þvi, sem hjer hefur verið tilfært, virðist það nokkurn veginn
auðsætt, hverjum megin Einar säl. Asmundsson mundi hafa staðið,
ef hann hefði nú verið uppi. Hann mundi hiklaust hafa fyllt
flokk ávarpsmannanna. Þeir segja, að hið framkomna tilboð hafi
i sjer fólgnar »mikilsverðar umbætur á hinum tilfinnanlegustu
göll-um á stjórnarfari voru.« Hann kernst nokkuð svipað að orði,
en þó öllu sterkara, þar sem hann segir, að »enginn galli á
stjórn-arskrá vorri sje eins tilfinnanlegur« og sá, að ráðgjafinn ekki mæti
sjálfur á alþingi, og hann segir meira að segja, að ef bætt væri úr
þessum galla, mundum vjer geta verið nokkurn veginn ánægðir
með stjórnarskrána. Að visu óskar E. A. helzt að ráðgjafinn væri
búsettur i landinu og ýmsra fleiri breytinga, en það gera
ávarps-mennirnir lika, ef þess væri nokkur kostur. En nú er ekki
um það að velja, heldur hitt, hvort taka beri þeim
allranauðsyn-legustu umbótum, sem nú bjóðast, eða hafna þeim, af þvi menn
fái ekki allt, sem menn óska, og halda svo áfram árangurslausri

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0133.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free