Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
124
með allramestu varkárni upp úr vasa sinum, og var nú mikil
for-vitni á að sjá, hvað í honum væri. Hann gerði sjer von um, að
það væri eitthvað kærkomið og honum brást heldur ekki sú von:
I bögglinum vóru þrjú hundruð þusundir franka í seðlum. —
Eptir þetta var það lengi altítt í hernum að kalla bæði
mynt-aða peninga og seðla Danzigar-súkkulaði, og þegar einhver
her-maður mæltist til þess af fjelaga sínum, að hann gæddi honum
á einhverju, þá var viðkvæðið vanalega:
»Nú, nú, kunningi! Ekki vænti jeg að standi svo heppilega
á fyrir þjer, að þú eigir einhverja ofurlitla tóru af
»Danzigar-súkkulaði« í töskunni þinni, ha?«
Þýtt af
V. G.
Tóbaksnautn á íslandi að fornu.
Helgi Jonsson jurtafræðingur hefur samið dálitla ritgjörð um tóbak í
EIMREIÐINA 1895. Ritgjörð þessi er fróðleg að ýmsu leyti og
drep-ur á hið helzta, sem menn vita um sögu tóbaksins í öðrum löndum,
en aptur minnist höfundurinn varla á sögu tóbaksins á íslandi; hefði það
þó legið miklu nær en að fjölyrða um hvernig Tyrkir og aðrar
fjar-lægar þjóðir tóku tóbakinu. Allt og sumt, sem Helgi segir um
tóbaks-nautn á íslandi, er, að tóbak muni hafa flutzt þangað um miðja 17.
öld. Jeg get ekki annað skiliö, en að alþýðu manna þyki fróðlegt, að
hafa sagnir um tóbaksnautn á Islandi á 17. og x8. öld, og skal jeg því
færa hjer til ýmislegt, sem jeg hef tint saman i þessa átt úr ýmsum
handritum og bókum.
16x5 hafa nxenn íyrst sögur af tóbaki á Islandi eða öllu frernur
viö Island, og þaö er mörgum árum fyr, en Helgi Jonsson segir, að
tóbak hafi flutzt til Islands. Þá stóð svo á, að Jón Ólafsson, sem seinna
var nefndur Austindiafari, tók sjer far með Englendingum frá
Vestfjörð-um til Englands. Jón ritaði seinna langa og fróðlega bók um utanför
sina og það, sexri dreif á daga hans í útlöndum; segir hann þar meöal
annars, að einn af skipverjum ’txafi heitið Rúben. Hann hafi tekið tóbak
á hverju kvöldi, og hafi hann sjeð hann fara með tóbak fyrstan maiína;
kveðst hann hafa lært af honum aö taka tóbak. Jón var hjer um bil
tiu ár i útíöndum, áður en hann kom til Islands aptur, svo ekki hefur
hann getaö kennt löndum sinum að taka tóbak; en það má fullyrða,
þótt ekki sjeu greinilegar skýrslur til um það, að íslendingar bafi lært
aö taka tóbak á sama hátt og hann, af utlendum sjómönnum, sem þá
tíðkuðu hvalveiðar og fiskiveiðar umhverfis landið ekki síður en nu.
Næst er minnzt á tóbak á Islandi í brjefi, sem sjera Arngrímur
Jonsson lærði ritar vini sínum Óla Worm 7. ágúst 1631. Brjefið er
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>