- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
125

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

125

ritað á latinu, eins og titt var meðal lærðra manna um þær mundir,
og skal jeg færa til kafla þann úr því, sem er um tóbak, í lauslegrí
þýðingu: »Mig fýsir að fræðast sem fyrst um hver áhrif tóbakið hefur,
þegar menn draga það að sjer gegnuin pipu, svo reykurinn kemur út
um munn og nef, hve skammturinn á að vera mikill og hve opt á að
taka pað; hvort rnenn eiga að neyta þess á fastandi maga, eins og
sjó-menn hafa sagt mjer, eða á annan hátt. Sumir segja, að þegar menn
draga aö sjer reykinn á þennan hátt, þá sje það hollt fyrir höfuð og
brjóst. Sumir segja lika, að þegar menn tyggja það vel, svo það
leys-ist upp, þá leysi pað slím úr maganum og hreinsi hann, með því móti
aö menn selji upp. Sjómenn tiðka þessa lækningu. Þeir hafa með sjer
strengi, sern búnir eru til úr þesari jurt, mylja þá svo að þeir geti
komizt í pípuna, og þurka þá loksins svo kviknað geti i þeim«. (Olai
Wormii Epistolæ 1751, bls. 312—13).

Worm svarar sjera Arngrimi 1632: »Jurtin er kaldrar náttúru, og
einkum holl fyrir þá, sem erü vots eölis1, ef þeir neyta hennar að eins
i hófi, eins og annara læknislyfja. Ef menn draga að sjer reyk hennar
gegnum pipu, eins og sjómenn tiöka, hreinsar hún slim úr heilanum
og skilningarvitunum. Ef menn låta svo mikið tóbak, sem jafngildir
múskathnot, standa á vini náttlangt og drekka það svo, þá eiga menn
hægra meö að selja upp, en annars veit jeg ekki, hvort óhætt er aö
taka jurt pessa inn«, (bls. 314).

Á brjefköflum þessum sjest, að tóbak hefur verið litt kunnugt á
íslandi um 1630, að minnsta kosti á Norðurlandi, þar sem öðrum eins
fræðimanni og sjera Arngrimi var ókunnugt um eðli þess, en aö öllum
likindum hefur það þá verið fariö að tiðkast á Suðurlandi. Vist er um
það, að kringum 1639 þekktu skólapiltar í Skálholti tóbak, og sjera
Stefán Olafsson, sem þá var i Skálholtsskóla, drepur á það í ljóðabrjefi
frá þessum árum, að menn reyki i gegnum nefið (Kvæöi I, ix).

Fyrst eptir að tóbak fór að tíðkast á Islandi hefur það veriö mjög
sjaldgætt, en þeim mun meira hefur þótt til þess koma. Menn sendu
kunningjum sinum þumlung af tóbaki að vingjöf (Kvæði sjera Stefáns I,
10), og á liinn bóginn báðu menn kunningja sina um svo sem
þumi-ung af tóbaki, þegar þeir vóru i tóbakshraki. I óprentuðu Ijóðabrjefi
eptir sjera Bjarna Gissurarson á Þingmúla til sjera Eiriks Olafsonar að
Kirkjubæ er visa þessi:

Bróðir nefi mínu rainn láttu’ í brjefi liggja þinn
miskunn veittu nokkra, að ljetta kvefi þumlunginn.

(Hrs. Thotts 473, 4to sbr. Kvæði sjera Stefáns I, LXXXII).

Tóbaksnautnin hefur breiðst mjög fljótt út á Islandi og um miðja
öldina hefur hún verið orðin altið. Tóbakið var kallað eða að minnsta
kosti ritað: tubaah (1658), tobach (1664), thobak (1679), og tubbach (1662,
Alþingisb. nr. 7). Menn vóru þá farnir að taka allt tóbak, sem nú
tíðkast, bæði reyktóbak, munntóbak og neftóbak2 og var það kallað

1 Orðatiltæki þessi eru tekin úr »plánetubókum", sem mikill trúnaður var
lagður á ura þessar mundir.

2 Sbr. vísu sjera Hallgríms Pjeturssonar um tóbaksnautn á Akranesi (Sálmar
og kvæði II, 442—43), því »spýtti« er þar prentvilla fyrir »snýtti«.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0139.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free