Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
36
getið í yfirliti yfir danska þjóðgripasafnið), skrifaði mjer, að þar í
sveitum væri fólk vant að vefa með spjöldum og sama væri að
segja um Svíþjóð. Þetta sannaðist og er jeg sneri mjer til »Nordiska
Museet« í Stokkhólmi, og við það tækifæri frjetti jeg lika, að í
Noregi tiðkast sama iðn. Mjer þótti þetta engin furða, þvi
Norður-lönd hafa alltaf staðið i nánu sambandi sin á milli, En jeg varð
meira hissa á að heyra, hvað húslæknir okkar, heilbrigðisráð
Dr. Max Bartels, sagði mjer, er hann kom aptur úr ferðum
sín-um siðast liðið haust. Dr. Bartels er einn hinna frægustu
mann-fræðinga á Þýzkalandi; varð hann fyrstur til að stofna »Verein
für Volkskunde« árið 1890 (fyrsti fundur þess var haldinn þann
23. jan. 1891) og »Museum für deutsche Volkstrachten und
Erzeug-nisse des Hausgewerbes« 1889. Sumarið 1897 fór hann á
lækna-fundinn, sem haldinn var i Moskófu. Þar skoðaði hann i
Rum-janzow-Museum allmikið þjóðgripasafn rússneskt; í
Kákasus-deild-inni sá hann litið kerfi af ferhyrndum spjöldum, skornum úr
spil-um (Spielkarten), með gat í hverju horni og þræði dregna gegnum
götin. Dr. Bartels hafði sjeð eptirmynd af íslenzkum
spjaldvefn-aði hjá mjer, og datt honum undir eins í hug, að þetta kynni að
vera vefspjöld. Frá Moskófu ferðaðist hann um mikinn hluta
Rússlands og kom til Kútais, höfuðborgar Imeretíu, sunnan
meg-in Kákasus-fjallgarðsins. Hann gekk þar inn í sölubúð
vopna-smiðs og varð honum starsýnt á karlmann einn, er sat þar inni
og óf í spjöldum. Spjöldin vóru lik þeim, er Dr. Bartels hafði
sjeð í Moskófu; maðurinn óf belti úr fínum silfurþráðum með
smágerðu rósaflúri, eins og þau tiðkast í Kákasus, þó flest belti
sjeu þar reyndar ofin úr gullþráðum með dökku rósaflúri og sum
með silfurröndum. Vefnaðaraðferð hans og umbúnaður vóru
nokkuð frábrugðin því, sem var hjá húsfreyjunni í skáldsögunni
»Maður og kona«. Fjöl á að gizka 2 metra löng var lögð með
annan enda á stól einn, og sat maðurinn á þeim enda fjalarinnar,
svo að hún stóð lárjett út frá stólnum og hinn enda hennar þurfti
eigi að styðja. Standur einn var festur upprjettur á hvorum enda
fjalarinnar; báðum endum slöngunnar (uppistöðunnar) var hnýtt
við tvo enda snæris eins, sem lagt var utan um standana og um
vinstra hnje mannsins; þannig var uppistaðan þanin milli
stand-anna og gat maðurinn með því að setja hnjeð fram gert hana
eins stríða og hann vildi. Þræðir uppistöðunnar gengu i
gegnum nokkurs konar kamb og svo gegnum spjöldin, og voru spjöld-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>