Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
I3S
laustiarsteinsbauka silfurbúna. Þeir eru metfje og eru nú i eign Löve’s
veitingamanns í Kaupmannahöfn, sem áður var fatasali á Islandi. Enn
getur Jón Olafsson frá Grunnavík um tóbaksstokk og tbbakskistu í
orða-bók sinni og bera nöfnin það með sjer, til hvers þessar hirzlur hafi
verið hafðar.
Tóbakið, sem tíðkar þjóð
temprast må þaö vel með kurt;
það er að vísu gáfan góð,
guði sje lof fyrir sJika jurt.
(Orðabók Jóns Olafssonar).
Ólafur Davíösson.
Um spjaldvefnað.
Eptir M. Lehmann-Filkés.
Þegar jeg fyrir tveim árum var að semja menningarsögulega
grein um Island, er síðan birtist í »Zeítschrift des Vereins fiir
Volkskunde« og fór þar að mestu leyti eptir hinni ágætu ritgerð
sjera Þorkels Bjarnasonar »fyrir 40 árum« í Tímariti
Bókmennta-fjelagsins og viðaukum Olafs dannebrogsmanns Sigurðssonar í
sama riti, råk jeg mig i fyrsta sinn á orðið: »spjaldofið«, er jeg
hafði enga hugmynd um hvað þýddi. Jeg komst þó vonum
bráð-ara að raun um það, því að í þjóðgripasafninu (Folkemuseet) í
Kaupmannahöfn varð mjer óvaranda litið á íslenzk vefspjöld, enda
gaf kona Dr. Valtýs Guðmundssonar mjer spotta af spjaldofnu
sokkabandi. Með því að rannsaka bandið varð mjer nú unnt að
kynna mjer aðferðina, sem höfð er við vefnaðinn, og upp frá þvi,
er mjer tókst það, er mjer óskiljanlegt, að þessi hannyrð skuli
á Islandi nærri því vera »fallin í gleymsku og dá«. Að vefa í
spjöldum þykir mjer svo »inndæl vinna«, að jeg vildi fegin vera
að því hvern einasta dag. Þykir mjer því meira til þess koma
sem þessi iðn er svo afargömul, sem Guðrúnarkviða II, 26 ber
vott um; þrátt fyrir það hefur spjaldvefnaðurinn hingað til verið
ókunnur þýzkum fornfræðingum og hefur nú fyrst tekið að vekja
athygli manna.
En það var ekki búið með þetta, heldur varð islenzki
spjald-vefnaðurinn lykillinn að öðrum athugunum. Kona jarðeiganda
eins og veiðistjóra á Jótlandi, frú Hvass í Randrup (hennar er
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>