Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
145
kosta að öllu leyti, bæði lagning þeirra, viðhald og stöðvastörf
við þá. En væri slíks ekki kostur í bráð, mundi fjelagið verða
nauðbeygt til að leggja sæsímann til Rvíkur (eða þar í grennd), með
þvi stjórnin mundi af auðskildum ástæðum gera það að skilyrði,
að sá staður fremur öllum öðrum kæmist í frjettaþráðarsamband
við útlönd.
Þó mjer nú þætti nokkuð mikið lagt i sölurnar frá Islands
hálfu fyrir eina einustu símastöð, þá virtist mjer að una mætti
við það, ef kostnaðurinn við lagning landþráða reyndist ekki meiri
en svo, aö búast mætti við, að landið gæti risið undir honum.
Jeg reyndi því að Ieita mjer upplýsinga um, hve mikið landþræðir
frá Berufirði til Akureyrar og þaðan til Rvíkur (með aukaþræði frá
Stað í Hrútafirði til ísafjarðar) mundu kosta. Sneri jeg mjer fyrst
tíl mannvirkjafræðings i Berlín, sem ferðazt hafði á Islandi og
at-hugað þetta, og varð áætlun hans sú, að þessir þræðir mundu
kosta um 400,000 kr. Aðra áætlun ljet Frjettaþráðafjelagið gera
og varð hún nokkru hærri um 450,000 kr. eða allt að 500,000 kr.
Þótt nú báðar þessar áætlanir sjeu lauslegar áætlanir og mestmegnis
byggðar á líkum (að eins svæðið millum Akureyrar og Rvíkur hefur
verið rannsakað), má þó ætla, að þær fari ekki allfjarri sanni.
Þar sem þingiÖ hefur nú með fjárveiting sinni til sæsímans
bundið landssjóði 700 þús. kr. byrði, gåt jeg ekki sjeð, að
nokkur von væri um, að hann yrði í nánustu framtíð fær um að snara
út allt að 1/2 miljón í viðbót til landþráða. En að fá slika þræði
virtist mjer þó óhjákvæmilegt, ef meginþorri landsmanna ætti að
hafa nokkurt verulegt gagn af sæsímafjárveitingunni. Þeir
fjár-hagslegu hagsmunir, sem landið ætti að geta haft af
frjettaþráða-sambandinu, eru einkum, hve það greiddi fyrir verzlun, siglingum
og fiskiveiðum. En ef sæsími yrði að eins lagður til Rvíkur, en
engir landþræðir, þá yrðu einmitt þeir hlutar landsins, sem mesta
þörfina hefðu og mest gagn gætu haft af frjettaþráðarsambandinu,
útundan. Engum getur dulizt, hve miklu tjóni hraðskeyti gætu opt
af-stýrt, þegar ís er á ferðum, og eins hve mjög þau gætu stuðlað
að því, að mögulegt yrði að nota sjer snöggar en skammvinnar
fiskigöngur (t. d. síldarhlaup), seni nú er ekki kostur á að færa
sjer fyllilega í nyt. En þetta á einmitt einkum við Austur-,
Norður-og Vesturland, sem því nær ekkert gagn heíðu af sæsímanum,
ef landþræði vantaði, því langt yrði og kostnaðarsamt að senda
menn með hraðskeyti til Rvíkur. Yrði liklega optast, að minnsta
10
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>