- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
158

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

58

því næst eru i ritinu: I. Kennaratal 1847—1897 með myndum af öllum hinum
föstu kennurum skólans frá byrjun hans; II. Kandidatatal eptir stafrofsröð og
þar jafnframt skýrt frá fæðingardegi, prófeinkunnum, hvenær þeir hafi útskrifazt
af prestaskólanum og líísstöðu hvers eins nú; III. skýrsla um prestaskólann
skólaárin 1895—6 og 1896—7 og IV. Flokkur eptir Valdimar Briem, sunginn
á 50 ára afmæli skólans 1. okt. 1897. Á titilblaðinu er mynd af
prestaskóla-húsinu.

ÁRSRIT GARÐYRKJUFJELAGSINS 1898. í því er um »hnúðberandi
galtartönn« eptir fyrv. landlækni Schierbeck, »Hvers vegna vex ekki í garðinum
mínum?« eptir skólastjóra Jónas Eiríksson, »Reynir, Birki, víðir,« eptir landfógeta
Arna Thorsteinsson, »Sáðreiturinn« eptir búifæðing Aöalstein Halldórsson og
»Garðyrkjuverkfæri,« »Blómin« og »Garðstunga« eptir garðyrkjufræðing Einar
Helgason. — petta rit ætti sannarlega að komast »inn á hvert einasta heimili«,
og helzt ætti að kenna börnunum það eins og kverið. Vjer viljum skora á
alla þá, sem hafa ekki enn fengið sjer það, að kaupa sem allra fyrst alla 4
ár-ganga þess; þeir kosta ekki nema 75 aura (20 au. hver einstakur), en eru margra
króna virði fvrir hvern þann, sem hefur sk3’nsemd til að læra af þeim.

HELGI HÁLFDÁNARSON: STUTT ÁGRIP AF PRJEDIKUNARFRÆÐI.
Rvík 1896. Þó bók þessi sje ekki nema 84 bls. á stærð, þá er mikið á henni
að græða. Hún er prýðilega samin bæði að etni, niðurskipun og orðfæri; en
mest þvkir oss þó varið í þann mannúðaranda, sem lýsir sjer í henni. Hún
heldur því fram, að embætti prestsins sje »ekki embætti fyrir damingar
-innar, heldur embætti fy rirgefningarinnar,* hin eiginlega köllun
hins kennimannlega embættismaiins sje »að boða fyrirgefning, frið og
frelsi« (bls 11); presturinn eigi »að liræra, en ekki að hræða« (bls. 80) og
»aldrei fyrírdæma« (bls. 82). Brennisteinsprestamir hefðu gott af að kynna
sjer þessa bók og vfir höfuð er hún hinn bezti leiðarvísir fyrir hvern prest
sem er.

■ STEFAN B. JONSSON: STJARNAN. Lítið ársrit til fróðleiks og
leið-beiningar um verldeg málefni. I. ár. Winnipeg 1897. Ársrit þetta er eiginlega
íslenzkt almanak handa Vesturíslendingum. en auk þess eru í því ýmislegar
rit-gerðir og uppdráttur af Winnipegbæ. Þar er meðal annars ritgerð um
írysti-hus og íshús og leiðbeining um bygging þeirra, um straumferjur, um metramál,
um ýmiskonar mælingar og margt fleira, sem gott er að vita. Yfir höfuð er
eigi alllítill fróðleikur í ritinu, en búningur þess er allt annað en góður. Málið
á því er mjög óvandað og víða herfilegt, og pappír og prentun í lakasta lagi.

ÍSLAND OG ÍSLENZKAR BÓKMENNTIR ERLENDIS:

FORNMENJAR OG NÚTÍÐARHEIMILI A ÍSLANDI (»Fortidsmlöder og
Nutidshjem paa Island«, Khöfn 1897) heitir bók, sem höfuðsmaður í herliði Dana
Daniel Bruun hefur skrifað. Er í henni fyrst stutt lýsing á landinu og náttúru
þess og því næst frásögn um ferð hans á íslandi 1896. Þá kemur fróðleg lýs-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0172.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free