- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
161

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

161

Nútíðarbókmenntir Dana.

Eptir Henrik Ussing.

Hvaða verur eru það annars þessi svonefndu skáld —, jeg
tala ekki um leirskáldin, — sem menn hefja til skýjanna með lofi
og dýrð, suma í lifanda lífi, en flesta þó ekki fyr en þeir eru
komnir undir græna torfu? Það eru, ímynda jeg mjer, menn
með samskonar tilfinningum, samskonar hugsunum og við hinir —,
en ef til vill göfgara og öflugra eðlis. Yfirburðir þeirra eru bæði
fólgnir í nákvæmari athygli og meiri skarpskyggni en almennt
ger-ist, en einkura og sjer í lagi í þeim hæfileika, að kunna að lýsa
í orðum öllu því, er liíir og fæðist í sálu þeirra, að kunna að
klæða það myndum og hljómi, er vekja hjá oss sömu hugmyndir
og þeir sjálfir höfðu. Buningurinn er hlutverk skáldsins. Efnið
verður að vera almennrar þýðingar, eigi það að fá nokkuð á oss.

I sálarlífi mannsins eru tvö ríki, ef svo mætti að orði kveða;
annað, þar sem skynsemin ræður lögum og lofum, hitt, þar
sem veldissproti hennar hefur eigi enn náð til og hún líklega
aldrei megnar að brjóta undir yfirráð sín. Hinu fyrnefnda mætti
likja við aldingarð, ræktaðan vel og vandlega; þar ern gangstígir
góðir, stráðir smágjörri möl, þar þróast nytsamar jurtir og trje;
hverjum óræktaranga og villijurt er á burtu kippt og aldrei nær neitt
illgresi að festa þar rætur; en þrátt fyrir það er allfagurt umhorfs
í aldingarði skynseminnar, þvi að mörgu er þar snoturlega
fyrir komið; hingað og þangað, þar sem vel þótti við eiga, getur
að líta dálitil beð með forkunnar fögrum blómum og smágjörvum
runnum, og sumstaðar eru hallkvæmir bekkir, þar sem menn geta
sett sig niður og notið þokkalegs útsýnis yfir þennan friðsamlega
frjóvsemdarreit, er sólin einatt laugar skæru, þýðlegu skini.

En fyrir utan aldingarðinn tekur við riki tilfinninganna;
það er stórvaxinn, tröllslegur skógur, með háum beinvöxnum
stofn-■um, breiðum krónum, er margflækjast hver inn í aðra, með
ýms-um vafningsjurtum, er kyrkja margan íturvaxinn við, og alls
konar gagnslausum og jafnvel eitruðum gróðri; en fagurt er þar
um að litast; og margir eru þeir, sem aldrei þreytast á að reika
um í skógarfylgsnum þessum, þótt hvorki sjeu þar götur nje göng
og sólargeislarnir nái ekki að gægjast þar inn nema með höppum
og glöppum.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0179.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free