- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
179

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

179

jafnt og þjett, þar var ekkert hlje, engin viðstaða; sama
grund-vallarskoðunin, hugmyndin um alheimssamræmið, gengur i
gegnum nálega öll skáldrit þessa tíma; menn låta hin ýmsu öfl
mætast ög heyja stríð hvort við annað, svo að því meira beri á
fegurðinni, þegar leiknum er lokið; menn låta himininn hyljast
dimmum skýjum, að eins til þess að stjarna hugsjónarinnar, eða
hins háleita takmarks, megi blika því skærar að lokum; og þótt
menn gætu eigi jafnan lygnt augum við rótarskap og órjettlæti
þessa heims, þá vissu menn, að annars heims (beinlínis eða óbeinlínis)
mundi sakleysið öðlast sín fullnaðargjöld og rjettlætinu verða
fram-gengt. Það var lika hægur vandi að skilja sauðina frá höfrunum; því
að allt, sem fylgdi fram merkjum hugsjónarinnar, var af hinu góða,
og það, sem á móti var, af hinu vonda. Og hugsjónin sjálf var
auðfundin, þótt hún gæti að vísu tekið ýmsum myndum á
ýms-um tímum. Efst á blaði var auðvitað alltaf einlæg ást og
lif-andi tilfinning fyrir náttúrunni, stórfengi hennar og samræmi;
þá var hreinskilni og trúmennska, hjartagæzka og stöðugleiki í
trúnni; ennfremur á öndverðu þessu tímabili konungsveldi og
allt, sem þar að lýtur, en annars fyrirlitning á öllum veraldlegum
gæðum; seinna frelsi, þjóðernistilfinning og ást á ættjörðunni, eins
og sagan lýsir henni með hennar mikla veldi og þjóðskörungum.

Það var hægur vandi að skilja sauðina frá höfrunum, því að
sauðirnir voru hvítir, en hafrarnir svartir; enda voru menn ekki
lengi að tína þá í sundur.

Við skulum nú snöggvast virða fyrir oss, hvaða
stjórnmála-byltingar liggja á bak við bókmenntahreyfingarnar í Danmörku á
þessu tímabili. Skirdaginn 1801 kveður við dynjandi skothrið á
Eyrarsundi; það var fagnaðarkveðja nýju aldarinnar. Margir
önd-vegishöldar rómönzku stefnunnar voru sjónarvottar að
bardagan-um og gátu sjálfir sjeð, hversu hraustlega vörn smáríkið
Dan-mörk veitti gegn stórveldi Breta, og hversu drengilega Danir buðu
flota þeirra byrginn, svo mikið ofurefli sem í móti var, og þótt
flotaforinginn væri hvorki meira nje minna en Nelson sjálfur, er
jafnvel Napoleon mikli haföi orðið að fara halloka fyrir. I
sam-fleytt áttatíu ár haföi Danmörk ekki átt í neinum ófriði; það var
eins og eitthvert undarlegt ævintýri væri nú alt í einu borið að
höndum; enda skoðuðu menn það lika sem ævintýri, sem nokkurs
konar endurreisn fortíðarinnar, og þá fór að ráma í, að til væri
eitthvað annað en eintómar »lifsnauðsynjar«, er vert væri að gefa

12*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0197.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free