- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
200

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

200

óðalsbænda, sem á rót sína í þeirri meðvitund, að eiga engum
neitt að þakka nema sjálfum sjer— og ef til vill’ guði á himnum —;
það er ekki sá yfirlætisbragur, er tíðkast meðal borgarbúa og
fólg-inn er í auðmýkt og lotningu gagnvart valdsstjettinni og
drembi-legri óþýðni gagnvart ókunnugum og óæðristjettarmönnum, heldur
annað og æðra yfirlæti, sem lýsir sjer í óbeit á öllum afkáraskap,
í meðvitundinni um eigið gildi, þar sem allt er hreint inni fyrir,
og í greiðvikni og vinsemd við gest og gangandi (allir þúast í
sveitinni). Schandorph er eins og dönsku bændurnir laus við allt
tepur og yfirdrepsskap. Tepur getur ef til vill farið stöku manni
vel og borið vott um næman fegurðarþótta, en það bendir lika
opt og einatt á allt annað. »Engin látalæti!« gæti jeg hugsað mjer
að væri viðkvæðið hjá Schandorph, alveg eins og hjá bændunum.
Obrotin bóndastúlka mundi ekki låta sjer bregða stórt i brún og
naumast fara að roðna út undir eyru, þótt einhver sæi hana i
fáklæddara lagi; hún mundi bara segja eins og ekkert væri um
að vera: »Það sjer þó liklega enginn annað en það, sem guð
hefur skapað«. I sveitinni dettur engum í hug að hneykslast á
þvi, þó að karlmenn tali um graðhesta, tarfa og tilhleypingar i
nærveru kvenna. Og sama heilnæma látleysið er Schandorph
eiginlegt, og þess vegna hafa bæjarmenn einatt fundið honum það
til foráttu, að hann sje »afleitur rusti«; en þess væri sannarlega
óskandi, að enginn þessara orðvöru manna, er jafnan bera fágað
mál á vörunum, mætti fremur heita því nafni. Schandorph elskar
þetta hrausta og heilbrigða lif, sem ískrar af lífsfjöri og gleði, og
hann kennir sáran i brjósti um hvern efnilegan frjóanga, er kæfður
er og kyrktur i fæðingunni:

Når du ærligt, mandigt ænser
Dine Grænser,
Måler Modets
Rækkekraft,
Hver en Evne
Kan da stævne

Ja, det bedste! Det, som gærne dölger sig forVerdens Blik,
Men i Livets Ørkenvandring dog den sande Lædskedrik,
Suget lönligt ind ad Porer, samlet i vor Hjærtegrund
Som en deraantklar Cisterne med en snehvid Marmorbund.
Det, som aldrig fornemt kyser stakkels Bedende på Flugt;
Det, som skærmer Lysets Tande, når dens Ild er næsten slukt;
Det, som binder Plantestænglen, når den er af Stormen brudt,
Som med varmest Ømhed favner just, hvad Verden har forskudt.«1

I Begejstring frem mod Målet,
Vorde smidig, stærk som Stålet;
Hjærteblodets
Ædle Varme, Livets Saft
Skal du til det bedste levne.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0218.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free