- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
218

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

218

— allt er svo tárhreint og tært; — að hálfs mánaðar tima liðnum
eru blöðin orðin ormjetin og liturinn dekkri; og svo kemur
há-sumrið, auðsælt og blómprungið; en æfi rósanna er stutt. Oðar
en varir er kornið hnigið á ökrunum og haustið dettur á með
hrakviðri og stormi; en trjen bera þó blöð sín enn, en nú eru
pau bliknuð og drúpandi; svo kemur frostið einhverja nótt, hægt
og hljótt, og pegar sólin rís að morgni fellur blað af blaði, blað
af blaði.—Allt er fokið í veður og vind.

Svona er blærinn á skáldsögunum »Tína« og »Hlöðvishvoll«.
En yíir sögunni »Örvona ættir«, er Bang ritaði á yngri árum, hvílir
eins og hausthöfgi, haustfúi og örvænting.

Eins og sífelld óró, og jafnvel glundroði, er aðaleinkennið á
ritum Hermanns Bang, pannig er og ró og skýrleiki ráðandi og
ríkjandi hjá Henrik Pontoppidan, og það helzt um of; enda skiptir
mjög í tvö horn um tilgang þeirra. Bang leitast við að gefa ljósa
mynd af sköpum mannanna, — pað er aðalmark hans og mið.
Þess vegna er honum það fyrir mestu að geta sjergreint
(individu-alisere) persónur sínar, pað er að segja að geta lýst þeim með svo
ljósum dráttum, að allir hljóti að finna, að einmitt svona sje
þeim manni varið, sem hefur reynt lífið og þjáningar pess, — en
að eins einum manni í víðri veröld; þess vegna tekur hann jafnan
allar »umhorfurnar« með, sem eiga svo mikinn þátt í lífi hvers
einstaklings, og gefur þeim ríkulegt rúm. A hinn bóginn er það
mark Pontoppidans að »alyrða« (generalisere), pað er að segja að
mála persónur sínar pannig að menn finni, að bak við hverja
einstaka peirra standi ótal aðrar, og að hún pannig sje fulltrúi
heillar stefnu, eða jafnvel heillar stjettar í pjóðfjelaginu. Um pessa
»fulltrúa« verður frásögnin að sveipa nokkurs konar friði og ró;
orð peirra hafa mikla pýðingu, pví að það er margra mál, sem
peir flytja; peir mega ekki vera málskrafsmiklir og sírausandi,
heldur verða peir að tala til vor sem talsmenn fjölda annara; vjer
megum ekki sjá þá við neitt hversdagsdund; þegar vjer pví sjáum
pá við eitthvert starf, pótt ekki sje nema við mykjukvíslina eða
plóginn, pá koma peir fram sem hálfgerð ímynd annara og gegna
pessu staríi í þeirra nafni. — Það er aldarhátturinn, sem
Pontoppidan leitast við að sýna oss, og pessvegna verða persónur hans
hver um sig að vera ímynd heils flokks.

Það eru fádæmin öll af »straumum« og »stefnum«, er gengið
hafa yfir Danmörk á síðastliðnum 20—30 árum. I stjórnmálum

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0236.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free