Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
219
geysar frelsishreyfingin, bæði hin almenna borgaralega vinstristefna
og jafnaðarstefnan, en andvígur peim er flokkur hægrimanna, er
halda dauðahaldi í það gamla og hata allt jafnrjetti. I
mennta-málum hefur lýðháskólahreyfingin, er fylgist fetum að við
frelsis-og framfarastefnuna, látið mjög til sín taka. I trúbrögðum er
annars vegar Grundtvígskan glaðvær og andlega hressandi, sem
helzt mjög í hendur við lýðhaskólamálið, og hins vegar
andstæð-ingur hennar »heimatrúboðið«, er hatar öll þessa heims gæði, þá
er hákirkjan, máttarstólpi hægrimanna, og skynsemistrúin, sem
einkum á heima hjá byltingamönnum úr vinstra flokki. I fögrum
listum er hlutsæisstefnan, er lengi var samgróin frelsishreyfingunni,
og römanzka stefnan gamla, er nýtur fylgis af ihaldsmönnum, og
auk pess hafa margar nýjar stefnur rutt sjer til rúms í peim efnum.
Og eflaust eru til margir fleiri »straumar« og »stefnur«, sem
örð-ugt er að telja i svipinn. Enda eykst talan eigi alllítið af
mis-jöfnum skilningi manna i ýmsum álfum pjóðfjelagsins. Og því
er nú svo varið með Henrik Pontoppidan, að hann kann manna
bezt að skapa söguhetjur sínar, þannig, að hann sýnir oss allan
strauminn og fylgismenn hans innan þess hluta þjóðfjelagsins, er
hann lifir í. Hann kann manna bezt að skapa einkennispersónur
þannig, að þær bæði geti haldið öruggri fótfestu á jarðneskum
grundvelli og þó jafnframt verið ímynd heillar »stefnu«. Til að
fá pessum tilgangi fullnægt málar hann einatt í feitum og
allaf-skræmandi dráttum, ofsalaust, hálfglottandi.
Það eru ekki margir sem komast hjá að kenna á háðsvipum
hans. Opt og einatt mælir hann með allmiklu yfirlæti. Menn
spyrja ósjálfrátt, hvar höfundurinn sjálfur sje, af því að peir eru
því vanir úr öðrum sögum, að höfundurinn haldi meira með
einni persónu en annari, og geta þannig áttað sig á skoðunum
hans; en það er mjög sjáldgæft að Henrik Pontoppidan gefi nokkra
visbendingu í pá átt. Því eiginleiki hans á rót sína í peirri
sjálf-hæðni, sem er orðin einkenni á oss Dönum, einkum siðan 1864, —
hamingjan má vita hvort í víðri veröld getur nokkra aðra þjóð,
er hæði og jafnvel spotti sjálfa sig eins og vjer Danir.
Pontoppidan ritar ljóst og hispurslaust, án allra óþarfa útúrdúra, og segir
frá bændum, prestum og lýðháskólafólki, er hann þekkir út í æsar
og skilur til fullnustu, í eins konar »aldaglaumi«; þannig eru
skáldsögurnar »Mold«, »Fyrirheitna landið« og »Dómsdagur«, sem
allar þrjár mynda eina heild; enn má nefna listamannasöguna
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>