- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
222

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

222

er söguhetjan, — og jafnvel einasta persónan i flestnm þeirra.
Höf-undarnir leitast við af fremsta megni að hrífa tilfinningar vorar og
skapsmuni; þess vegna úir og grúir af hendingum og höfuðstöfum,
er þeir rita í óbundnu máli. Þeir kæra sig kollótta, þótt persónur
þeirra tali öðru vísi en allir aðrir menn, ef að eins sálarlíf þeirra
stendur oss ljóst fyrir augum. í stuttu máli, þeir snúa sjer frá
hinni útvortis hlið að hinu innra, og aðalmark þeirra er
innileg-leiki. Helztur þessara manna er Johannes Jörgensen. Angurblíða,
löngun og heimþrá eru einkennin á skapi hans og skáldskap, og
hafa knúð hann til að leita hælis i skjóli hinnar kaþólsku kirkju
gegn árásum efasemdar og veraldlegra girnda. Þá má nefna Viggo
Stuckenberg. Rit hans bera einmanalegan blæ, eru smágjör og
tilfinningarík, þótt þau einatt sjeu nokkuð mærðarmikil; í gegn
um þau öll má heyra óminn af þjóðvísu einni, sem hann hefur
valið til einkunnarorða á eina af bókum sínum. Vísan hljóðar
þannig:

»Ravnen flyver om Aftenen,

Om Dagen han ikke må.

Den må íriste den onde Skæbne,

Den gode kan ikke få.

— Men Ravnen flyver om Aftenen.«1

Það er þó ekki svo að skilja að öll yngri skáld Dana gefi sig
þannig eingöngu við að rannsaka hjörtun og nýrun i sjálfum sjer
og öðrum.

Gustav Wied er af allt öðru sauðahúsi. Hann er svo
rudda-legur, keskinn og klúr í orðum, að vjer höfum lengi ekki átt
sliku að venjast i bókmenntum vorum. Enda veit hann af þvi
sjálfur, þvi að hann nefnir ekki leikrit sin hinu vanalega nafni,
sem sje »gamanleiki« eða »skripaleiki« heldur »satýrleiki«. Það
eru líka hjákátleg hafrahlaup í honum á stundum.

íf: *

Ef jeg nú að lokum á að ljúka einkunnar orðum á danskar
bókmenntir yfir höfuð, þá verð jeg fyrst að taka það fram, að
slíkt er áhorfsmál, að taka þannig allt í einu og kveða upp einn
allsherjardóm, þar eð naumast getur hjá þvi farið, að hann verði
ónægur og villandi. Þó hlýtur sú hugsun að hafa mikið til sins

1 Þ. e. Hrafninn flýgur um aftaninn, á daginn má hann það ekki; sá verður
að freista illra örlaga, sem engin fær góð. En hrafninn flýgur um aptaninn.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0240.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free