Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
226
en ekki aldur nje heilsa;
of snemma, vinur minn kæri,
hylur þig moldin og myrkrið
í Munka-Þverar garði!
Heyri jeg röddu hljöma
— af himni og eigi jörðu
er hún að eyrum mjer komin —
unaðsbliða og sæta:
»Leita ei liðins vinar
í lágu moldarskauti,
því hann þar er ekki.
Þerðu tár af augum,
horfðu upp til himins
hvörmum trúar þinnar.
Þjer röddin in himneska og helga,
hlýði jeg ljúfu geði. —
Og sjá! minn sjónarhringur
sundur gengur og vikkar
— eg það með fögnuði eygi —
ut yfir gröf og dauða.
Sunnar sjálfum heimi,
sól og tungli hærra,
ofar öllum stjörnum,
efstu vetrarbrautum
liggur landageimur,
ljóma heilar álfur,
sveiptar sælu skini
sólar alheims bjartrar,
er aldrei gengur undir,
eða felst i skýjum–-
Beyg þig með undrun og auðmýkt
og elsku, sál min, til jarðar!
Ei megnar mannleg tunga,
moldarfjötrum bundin,
að lýsa dýrðinni drottins
dásamri í himnaríki!
Hvi er mjer hryggð í huga
og hvarmatár á vöngum
fyrst jeg veit með vissu,
vinurinn minn góði,
að þú ert þangað kominn
er þekkist ei frost nje kuldi,
ei haust nje hjelunætur,
húm eða skammdegi vetrar,
en yfir þjer brosir hið bjarta,
hið blíða og unaðslega
um eilífð endalausa,
æsku > og fegurðar vorið I
II.
Hvort er sem mjer sýnist? —
Snemma er nú gengið til rekkju,
því að úr hásuðri heiðu
horfir nú sól á jörðu
og eptir dalnum andar,
ofan af landi runninn,
andvari einkar-ljúfur
og yndislegum rómi
syngja sumarfuglar
og af sætri ilman blóma
angar loptið úti;
einn ertu, vinur, i hvilu,
þegar að allir aðrir
önnum og skemmtunum sinna,
og eigi þú vaknar þótt vinar
— vær er þjer svefninn á
hvörmum
og höfgur blundur i brjósti —
berist þjer rómur að eyrum.
En vekja hlýt eg þig, vinur,
vantalað margt því eigum.
Gott er tóm og tími
til að blunda seinna,
er sól að sævi hnigin
og sinum gjörvallan hefir
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>