Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
236
tryggnin sje það illgresi, sem einna mest standi þjóðtjelagi voru fyrir þrifum, því
hann tekur það kröptuglega fram á tveim stöðum í ritgerð sinni (bls. 2 og 24),
að hún sje »einn hinn skaðlegasti þjóðlöstur vor«, hún sje »óheilnæm«,
»heimsk-uleg« o. s. frv. Það gleður oss stórlega að sjá hinn heiðraða höf. lýsa yfir
þessari skoöun sinni, því það gefur oss vissa von um, að hann verði þá ekki
að finna í málaliði tortryggninnar í stjórnarskrárbaráttunni á næsta þingi. Næst
koma í ritinu tvær ritgerðir eptir Benedikt Jonsson: »Verzlunararður« og
»Fjelags-fræði«. Á hin fyrri þeirra að fcra mönnum heim sanninn um, hve
stórkost-legan hagnað menn hafi af kaupfjelagsskapnum, og að allir kaupmenn sjeu óþarfir
milliliðir, sem ættu að falla alveg burt og allt landið að gerast eitt kaupfjelag,
en hin síðari er að mestu leyti þýðing úr »Den moderne Samfundslære« eptir
dr. Sigurð Ibsen; er sú ritgerð bæði mjög fróðleg og hinn íslenzki búningur
hennar svo góöur, að mann hlýtur að furða, að ólærður alþýðumaður skuli hafa
getað farið svo vel með jafnerfitt efni og þar er um að ræða. En þótt
fram-setning B. J. sje að öllum jafnaði einkar liðleg, eru skoðanir hans ekki ætíð að
sama skapi óskeikular, þegar farið er að kryfja þær til mergjar. Þannig er það
t. d. helber fjarstæða, að halda þvl fram, að nokkurt þjóðfjelag geti komizt af
án allra kaupmanna. En þetta gerir hann í ritgerð sinni »VerzlunararSur«, og
segir að »tilgangur kaupljelaganna sje enginn annar en sá . . . . að fækka þeim
(0: kaupmönnunum), og jafnvel koma ár sinni svo fyrir borð, að þeirra þurfi
alls ekki meö<i. Hann segir, að »sú hugsjón hljóti að vaka fyrir hverjum sönnum
haupfjelagsmanni, sem skilji stefnu timans og eðli kaupfjelagsskaparins, að koma
verzlun lands vors smámsaman í þetta horf (0: að þjóðin verði öll eitt
kaupfjelag), koma henni allri undir eina öfluga stjórn*. Samkvæmt þessu er það
mark og mið kauptjelagsmannanna, að afnema alla kaupmenn og alla ffjálsa
sam-keppni og gera alla verzlun landsins að hinni römmustu einokun. Það má
segja um þetta, að tvennir eru timarnir. Hver skyldi hafa trúað, að menn færi
aptur að langa i verzlunareinokun, jafnmikið og þjóð vor hefur orðið að líða
undir þeirri plágu á umliðnum öldumf En hver veit hvað kaupfjelögunum
kann að takast í þeim efnum, ef flokkur þeirra verður nógu öflugur á alþingi,
til þess að geta ráðið lögum og lofum í verzlunarlöggjöfinni? Sumir af
kaupmönnum landsins virðast jafnvel vera hlyntir sömu stefnunni, þar sem þeir
opin-berlega styðja þá menn til þingsetu, sem eru að vinna að þessu einokunarmarki.
Þá eru í ritinu »Skýrslur um kaupfjelög«; eru þær að vísu allfróðlegar, en
sá .er hængur á, að þær eru flestar um útlend kaupfjelög, en einar tvær um
inn-lend fjelög (Dalasýslu og Þingeyinga). Síðast er kafli, sem heitir »Samtíningur
og sáðkorn« og er hann í 5 greinum. Er einkum hin fyrsta þeirra, »Samvinna
og sjávarútvegur« (eptir ritstjórann, alþm. Pjetur Jonsson), harla eptirtektarverð.
Það er stutt, en þó kjarnmikil ritgerð, sem sýnir fram á, hverjir sjeu hinir helztu
agnúar á sjávarútvegi vorum eins og hann nú er rekinn, og hvernig væntanlega
megi ráða bót á þeim flestum með nægilegum samtökum og fjelagsanda. Getum
vjer verið höf. samdóma um flest þau atriði, er hann tekur þar fram, nema hvað
vjer kysum eimskipaveiði, þar sem hann gerir ráð fyrir þilskipaútveg. V. G.
INDRIDI EINARSSON: HELLISMENN. Sjónleikur í fimm þáttum. Rvík
1897. Höf. hefur tekið efni leiksins úr hinni alkunnu þjóðsögu um Hellismenn.
Hefur hann, eins [og rjett var, gjört bóndasoninn frá Kalmanstungu að
aðal-manni leiksins, og kemur hann fram sem erkifantur, er ekkert lætur sjer fyrir
brjósti brenna til að koma Hellismönnum í hel. Aðalhvöt hans er metnaðar-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>