- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
12

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

II

verða málin bezt rannsökuð og rædd, og þar sem um
velferðar-mál landsins er að tala, þá er þetta bezt fyrir land og þjóð.

Atkvæði eins kjósanda er ekld betra en annars. J>að er engu
meira varið í atkvæði þess kjósanda, sem á heima rétt hjá
kjör-staónum, heldur en þess kjósanda, sem á heima langt frá honum;
þess vegna á að fjölga kjörstöðunum. En að sínu leyti er heldur
ekki minna varið 1 atkvæði bindindistnannsins heldur en
áfengis-mannsins, þó að bindindismenn séu ekki í meirihluta í einhverju
kjördæmi. Úr því að lögin ákveða, að sá eða sá maður eigi að
hafa rétt til að greiða atkvæði, þá eiga þau ekki með alls konar
óeðlilegum ákvæðum, að svifta atkvæðið því gildi, sem þaö getur
haft í hlutfalli við önnur atkvæði. Og því síður eiga lögin að
gjöra slíkt, þar sem það er heillavænlegra fyrir þjóðfélagið, að
hvert atkvæði hali svo mikið hlutfallslegt gildi, sem verða má,
þar sem þetta er skilyrðið fyrir því, að velferðarmál landsins verði
sem bezt rannsökuð og rædd.

Hinn frakkneski stjórnvitringur Mirabeau sagði svo 1789:
»Fulltrúaþingin eru fyrir þjóðina alveg hið sama sem
landsupp-drátturinn er fyrir landið; í stóru sem smáu eiga þessar ímyndir
að sýna sömu hlutföll sem frummyndirnar«. þetta ætti að vera
svo, en það er ekki svo, og allra sízt, þar sem eiga sér stað
venjulegar meirihlutakosningar í kjördæmunum.

Vér höfum áður athugað kjördæmaskiftinguna, að því er
snertir sannfæringu kjósendanna, en nú skulum vér athuga
kjördæmaskiftinguna, að því er snertir landsmálin. Með
kjördæma-skiftingunni fylgir meirihlutakosning. Öllum atkvæðum
minni-hlutans er vægðarlaust varpað fyrir borð og ekkert tillit tekið til
þeirra. þetta er að voru áliti ekki rétt og það hefur hinar mestu
og, ég vil bæta við, hinar verstu afleiðingar.

Fyrst og fremst hefur þetta mjög iilar afleiðingar, að því er
snertir kjósendurna. ]?að gjörir þá sljóva og áhugalausa á
vel-ferðarmálum þjóðarinnar. Ef kjósandinn er í eindregnum
meirihluta, þá hugsar hann sem svo: »Eg þarf ekki að greiða
at-kvæði; minn flokkur sigrar samt«. Svo situr hann heima. En
hinn, sem er í eindregnum minnihluta, hugsar sem svo: »það hefur
enga þýðingu, þó að ég komi. Atkvæði mínu er kastað fyrir borð
og er einskis nýtt«. Svo situr hann heima. Kjósendurnir verða
skeytingarlausir og áhugalausir um velferðarmál þjóðarinnar, sem
þeir þó að réttu lagi eru ráðandi yfir. Einungis þegar tvísýni er

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0018.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free