Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
19
við þetta ætti þá reglan að vera, aö kjósandinn kysi alla þingmenn
á landinu eða 30 menn alls. Eg vona að menn sjái þegar í stað,
hversu þetta er fráleitt. Það eru fæstir, sem þekkja 30 af
þing-mannaefnunum, og þótt þeir þektu þau 30, þá mundu fáir
kjós-endur með góðri samvizku geta gefið þeim öllum atkvæði sitt.
Auk þess sem þetta væri hið sama sem að skipa mönnum að
kjósa í blindni eða jafnvel gegn sannfæringu sinni, þá væri þetta
bygt á þeim ramskakka grundvelli, að hver kjósandi ætti í raun
og veru aö ráða allri stjórn landsins, þar sem hver kjósandi á að
eins með atkvæði sínu að hafa áhrif á landsmálin í hlutfalli við
önnur atkvæði samlanda sinna.
Kjósandanum er nægilegt aö hafa einn fulltrúa fyrir sig. Pegar
hann má velja úr öllum þingmannaefnum landsins, þá getur varla
hjá því farið, að hann geti eigi fundið einhvern fulllrúa, er hann
telur treystandi til að vera það. Ef hann svo vill styðja fleiri
þing-mannaefni, þá getur hann greitt atkvæði með þeim flokki, er hann
fylgir að málum. En það sýnist eigi vera rétt, að leyfa kjósanda
að kjósa fleiri eða færri þingmenn sitt úr hverjum flokki;
atkvæða-greiðslan verður á þann hátt bæði flókin og svo sjáum vér eigi,
hvert gagn er í því, að kjósendur séu að hringla þannig með
atkvæöi sín. Vér sjáum því, að tillaga Will. Scharlings prófessors
um þaö, að kjósandi gefi einum framboða atkvæöi sitt, er á
full-um rökum bygð.
En eins og ég hef tekiö fram, þá er eðlilegt, að kjósandi
geti greitt atkvæði með þeim flokki, er hann fylgir að málum.
Flestir hafa heyrt dæmisöguna um föðurinn og stafina. Pcgar
faðirinn tók alla stafina í einu, þá var eigi hægt að brjóta þá, en
þeir hrukku allir sundur, þegar tekinn var einn og einn. Pað er
mikill munur á því, hvort kjósendur eru á tvístringi og
sundrungar-andi ræður meðal manna, eða hvort menn sameina sig og fylgja
ákveöinni stefnu.
Pess vegna eru í öllum siðuðum löndum stjórnmálaflokkar,
sem fylgja einhverri ákveðinni stefnu í velferöarmálum landsmanna.
Sérhver kjósandi verður að gjöra sér ljóst, hvort hann vill fylgja
nokkrum flokki, og ef svo er, þá hverjum flokki hann vill fylgja
að málum. En ef þetta er rétt, þá er einnig rétt, að kjósandinn
geti sýnt það með atkvæðaseðli sínum, hvern flokk hann vill styðja.
Eftir reglu Hagenbach Bischofs við hlutfallskosningar er það
beinlínis ákveðið, að kjósa skuli eftir framboðaskrám. Kjósandinn
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>