- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
44

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

44

máli, sem hefur mátt að þola
meinin öll, er skyn má greina:
ís og hungur, eld og kulda,
áþján, nauðír, svartadauða; —
málið frægsta söngs og sögu
sýnu betra guða-víni,
mál, er tyllir svimandi sælu,
sál og æð, þó hjartanu blæði-

lJað hefur voöa-þungar tíðir
þjóðinni veriö guðleg móðir,
hennar brjóst viö hungri og þorsta,
hjartaskjól þegar brott var sólin;
hennar ljós í lágu hreysi,
langra kvelda jóla-eldur,
fréttaþráöur framandi þjóða,
frægðargaldur liðinna alda.

Stóð það fast þegar storðin hristist,
stóð þaö fast fyrir járni og basti;
stóð það fast, og fjör og hreysti
fékk hvað mest við stríð og hnekki.
Lof þitt, Frón, sé Ijóðum stafað,
lof fyrir hrundinn sálardofa,
víkingslund og brýnda branda
bráðeggjaðra hreystidáða-

»Undrask fögur öglis landa
eik hvi vér sém fölir og bleikir«, —
spurði skáld, og grafljóð gerði
geymileg meðan byggist heimur.
Héðinn söng meðan hyrjar tungur
heljarváða stefin kváðu;
pórir, Jökull og þaðan af fleiri
þuldu ljóð meðan öxin buldi.

Sturla kvað yfir styrjarhjarli,
Snorri sjálfur á feigðarþorra,
ljóö frá auði lyfti Loýti,
»Lilja« spratt í villukyljum.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0050.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free