- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
45

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

45

Arason móti exi sneri
andans hvassa vigabrandi;
Hallgrímur kvað í heljarnauðum
heilaga glóö í freðnar þjóðir.

Hvað er tungan? — Ætli enginn
orðin tóm séu lífsins forði;
hún er list, sem logar af hreysti;
lifandi sál í greyptu stáli;
andans form í mjúkum myndum,
minnissaga farinna daga;
flaumar lífs í farveg komnir
fleygrar aldar, er striki halda.

Tungan geymir í tímans straumi
trú og vonir landsins sona,
dauðastunur og dýpstu raunir,
darraðarljóð frá elztu þjóðum,
heiftareim og ástarbríma,
örlagahljóm og refsidóma;
land og stund í lifandi myndum,
ljóöi vígð, hún geymir í sjóði.

Tungan mögnuð sögn og signing
söngvaljóða kallast óður;
því eru ungir óðmæringar
aðalblóm og þjóðarsómi. —
Heyrið, skáld, á fimbulfoldu!
frelsið deyr, ef vantar helsi.
Væri eigi í lofi lygi
landsins gæða, mættuð þér hræðast.

Pakkið mein og mestu raunir
Mammonsríkis Ameríku!
þakkið slyppir kaupin kröppu,
keppni er betri en stundarheppni.
Hvað er frelsi? Hjóm og þvaður,
hjörinn þinn nema sigrinn vinni;
þrælajörð þér veröldin verður,
verk þín sjálfs nema gjöri þig frjálsan.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0051.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free