Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
46
Fá mér tind af Garðars grundu,
guðastól á sjónarhóli!
Sjá, ég eygi alla vegu
ógnarland — fæ glóð í anda:
Vei þér fjöldi viltrar aldar,
veldisorð hér liggur í storðu!
sæk þú hart. en varkár vertu:
voöafull eru lönd úr gulli!
Heyrið, skáld, á fimbulfoldu:
fram í stafn í drottins nafni!
yður ég fel — það sjái sólin —!
sverð, er dýrast fundið verður:
það er harpan hert og orpin
Hekluglóð og jökulflóði,
vígö í Dvalins voða-bygðum,
vöggu-óð og föðurblóði!
Særi’ ég yður við sól og báru
særi’ ég yður við líf og æru:
yöar tungu, orð þó yngist,
aldrei gleyma í Vesturheimi.
Muniö að skrifa megin-stöfum
mannavit og stórhug sannan.
Andans sigur er æfistunda
eilífa iílið. — Farib heilir!«
Matth. Jochumsson-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>