- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
52

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

52

Nýjungar í jarðfræði íslands.

»Pað líkist engum lóndum«.

í’orsteinn Erlingsson.

Helzta nýjungin er skjótt að segja sú, aö móbergið á íslandi
er að nokkru leyti, eða ef til vill að miklu leyti, fornar jökulurðir,
nú orðnar að einum steini og talsvert umbreyttar á ýmsan hátt.

Oss hefur kent verið um móbergið, aö það hafi í upphafi
verið eldfjallaaska, en innanum »ýmislega lagaðir basaltmolar og
hraunmolar«. Að því er mér skilst, hafa þó veriö miklir
erhð-leikar á að skýra nánar, hvernig sumt móberg hafi farið að
mynd-ast við gos. En ýms einkenni þessara móbergstegunda, sem
erfiðleikana gera, veröa auðskilin, þegar þa& er séð, að þetta grjót
er í raun réttri undan jöklum, og tná rekja þetta ýtarlega, þó að
ekki veröi það hér gert.

Frá tveim hliðum má skoða þetta mál. A5 öðru leytinu
sjá-um vér, að bergtegund ein er alls annars eðlis, en talið hefur
verið, og skal lítið farið út í það hér. En um hitt ætla ég að
fara nokkrum oröum, hvers vér getum orðið vísari af þessari
bergtegund, þegar hún er rétt þýdd.

Vitringur einn hefur komist svo að oröi, að atburðirnir semji
sína eigin sögu um leíð og þeir verða, og á það ekki sízt heima
í sögu jarðarinnar; hraunin segja frá eldgosum, einkennilega skafið
og rispað grjót frá skriðjöklum o. s. frv. Hlutverk
jarðfræðing-anna er nú bæði að taka sem bezt eftir, hvernig jörðin fer að
skrásetja sögu sína, og eins að finna og þýöa rétt þau skjöl og
skilríki, sem til eru.

Par sem er móbergsmyndanin íslenzka, má nú svo að oröi
komast, að vér höfum auðugt skjalasafn, er lýtur aö ýmsum
at-burðum í jarðsögu landsins, ekki ómerkum. En lykilinn að þessu
safni hefur vantað, og þar af leiðandi hlýtur því yfirliti yíir
jarð-fræði íslands, sem fengist hefur enn sem komið er, að vera
talsvert áfátt, ámóta og vera mundi þekkingu vorri á sögu
þjóðar-innar, ef sagnfræðingarnir hefðu ekki haft neina vitneskju um
Sturlungaöldina t. a. m.

Nú er þessi lykill fundinn, og þó aö lítið sé að gert um
rann-sóknir á þessu skjalasafni enn, þá er samt svo mikið séð, að
stór-um verðum vér aö breyta skoöunum vorum á jar&fræöi lands vors,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0058.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free