- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
59

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

59

vegna víðsýnis og þurrlendis.1 Nú var þetta um vorið; — hvað
meinar okkur að ímynda okkur, að veðrið hafi verið fagurt
vor-veður, eins og það er oft? Pá var ísland fagurt og frítt, og svo
hafa fleiri sagt:

»Landið var fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tindar,
himininn heiður og blár, hafið var skínandi bjart«.
Pannig er Iandiö enn: Ingólfur hefur haft sömu útsjón frá
Skóla-vörðunni eins og vér höfum enn, en þá var landið ósnert af manna
höndum, þangað til haföi náttúran ein ráðið, þá voru engin hús
og engir bæir nokkursstaðar og engin mannaverk. I’ar var ný
veröld, sem náttúran gaf Norðmanna sonunum. t>á hefur Ingólfur
séð reykina leggja upp úr Laugunum og gefið staðnum nafn af
þeim.2

Vér höfum enn sama útsýni, sem Ingólfur hafði fyrir meir en
þúsund árum, ef vér stöndum hjá »Skólavörðunni«. Varla getur
hjá því farið, að Ingólfi hafi fundizt til náttúrufegurðarinnar þar,
hafi þeir fornmennirnir annars haft nokkra tilfinningu fyrir
náttúr-unni. En hennar gætir harla lítið í kvæöum og sögum fornaldar
vorrar, og bregði þess konar snögglega fyrir, svo sem með einu
orði, eða fáum orðum, þá finst oss það furða. Pessu bregður þannig
stundum fyrir í Eddukvæðunum, en það er eins og leiftur; vér
verðum hissa á öðrum eins náttúrulýsingum ogþessari: »austr sék
fjöll af flausta ferli, geisla merluð«, eöa þessu: »Glens beðja veðr
gyðju guðblíð í vé síðan«. Petta og annað eins er sjaldgæft hjá
fornmönnum. Þeir höfðu annað aö gera en að furða sig á
nátt-úrunni og lofa hana; skáldskapur þeirra fékst við alt annað. — Pá
skulum vér nú njóta hinnar sömu útsjónar og Ingólfur.

ÚTSÝNI FRÁ SKÓLAVÖRÐUNNI. Vér stöndum hjá
Skóla-vörðunni einhvern góðan veðurdag, á vori eða sumri, þegar sólin
hellir geislum sínum yfir landið og sjóinn, þegar landið er grænt

1 »Oddr tók nú at eldast mjök, ok er hann spurði þat, at hvárgi sona hans
mundi til koma, tók hann sótt mikla, ok er at honum tók at þröngva, mælti hann
við vini sína, at þeir mundi flytja hann upp á Skáneyjarfjall, þá er hann væri
dauðr, ok kvaðst þaðan vildu sjá yfir Tunguna alla, ok svá var gjört«. (Hænsaþórís
saga 17. kap.). Fleiri dæmi mætti telja.

2 Eitthvað hef ég heyrt um að hverir hafi áður verið úti í Örfiriseyjarhólma eða
Grandahólmanum sem kallaður er, en það held ég sé tómur tilbiíningur, eins og það,
að þar hafi átt að vera (til skams tíma) járnhringir í klettunum til að halda
skip-um, sem þá gåt ekki verið gert fyr en á einokunartímunum. Þetta er svipað
bæja-sógunura um »50 hurðir á járnum«, í Næfurholti og víðar.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0065.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free