- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
58

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

58

gerst merkilegar sögur og hennar gæti því lítið sem ekkert fram
eftir öllum öldum.1 Ingólfur kom fyrst aö Ingólfshöfða, en fór síðan
vestur eftir til Hjörleifshöfða; þriðja veturinn var hann undir
Ingólfs-fjalli fyrir vestan Ölfusá, og »þau missiri fundu þeir Vífill og Karli
[þrælar Ingólfs] öndvegissúlur hans vib Arnarhvál fyrir neðan heiði«.
>Ingólfr fór um várit ofan um heiði; hann tók sér bústab þar sem
öndvegissúlur hans höfðu á land komit; hann bjó í Reykjarvík«.

Þab er auöfundiö, aö Landnáma fer hér fljótt yfir og er
allstór-stíg. Hér kemur þab fyrir, eins og víðar í sögum vorum, að þaö
er eins og engar torfærur hafi verið, það er eins og þeir hafi farið
fljúgandi. »Arnarhváll« er enn hinn sami, og heitir enn
»Arnar-hóll« (líklega eftir Erni föður Ingólfs; en annars getur Landnama
ekkert um þennan Örn); öndvegissúlurnar hlutu því að reka suður
fyrir land alt, fyrir Reykjanes og inn á Faxaflóa og fyrir Gróttu
á Seltjarnarnesi og svo inn Kollafjörð, og er þetta undarlegt
kring-sól og engin dæmi til að hlutir reki hér þannig. Par með er ekki
sagt, að þetta hafi ekki getað átt sér staö.

Með »heibi« hlýtur ab vera meint annaðhvort Hellisheiöi eða
Mosfellsheiði; vér vitum ekkert um hvern veg Ingólfur hefur farið;
ekkert um hvernig hann hefur verið útbúinn eða hvaö hann hefur
flutt með sér; mikið gat það ekki verið, kominn langt austan af
landi og verið svo lengi á leiðinni, þrjú ár að minsta kosti — ekkert
er getið um eyki né fólk né farangur. Vér vitum ekkert, hvernig
sá bær hefur verið, sem hann reisti í Reykjavik, hvort hann hefur
verið úr timbri eða grjóti eba hnausum, ekkert um, hvar hann
hefur staðið.

Vér vitum ekkert um hvar eða hvaöa veg Ingólfur hefur farib,
og komið ab þessum staö. En vér getum vel ímyndab oss, ab
hann hafi komið Öskjuhlíö og horft yfir landib frá þeirri hæð, sem
»Skólavarban« stendur á. Ekkert er á móti því að ímynda sér,
að þeir hafi valið hæstu staðina, til þess ab sjá þvi betur yfir
landið, og þannig hafa bæjarstæði hér helzt verib valin, bæbi

um þá; Landnáma getur hvergi um að íslendingar hafi fundið þá, þótt svo standi á
einum stað: »Ketill (enn fíflski) bjó í Kirkjubæ, þar höfðu áðr setit Papar, ok
eigi máttu þar heiðnii’ menn búa«, og seinna: »Hildir vildi færa bú sitt í Kirkjubæ
eptir Ketil, ok hugði at þar mundi heiðinn maðr mega búa; en er ha’nn kom nær
at túngarði, varð hann bráðdauðr; þar liggr hann í Hildishaugic. — Eitthvað hafa
þeir vitað um þetta.

1 Kålund segir alveg rétt: »Med Ingolfs hjem kan i en vis forstand intet sted
i landet måle sig*.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0064.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free