- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
77

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

77

hús ný, Hjartar snikkara og Einars Finnssonar, og eru í smíðum,
en neðar er »Stuðlakot«, húsaþyrping nokkur, og hefur þar
fyrr-um verið bær og stöðull, og heitiö »Stöðlakot«, þótt nú sé nafnið
afbakað.

Skólastígurinn liggur út úr Bankastræti, og er þar fyrst hús
Björns Guðmundssonar múrara og tímburkaupmanns, stórt hús
tvíloftað, með tveim götudyrum; þar fyrir framan er blómgarður
og girtur vönduðum múrvegg, Pá er lítið hús einloftað, og var
fyrrum eign Pórdísar Melsteðs, ekkju Jónasar Thorstensens
sýslu-manns; en síðan bjó þar Arinbjörn Sveinbjarnarson, bókbindari,
þangað til hann bygði sér hús á Laugaveginum, sem fyr er getið.
Pá er hús allmikið, sem Einar Jonsson snikkari bygði. Einar atti
fyrst heima í Hafnarfirði á bæ þeim er Brúarhraun nefnist, og við
það var hann lengi kendur; hann var listamaður og smíðaði sér
liðlu (fíólín) og lék á hana, ketidi sér sjálfur; Einar fluttist síðan
til Reykjavíkur og græddist honum skjótt fé, svo hann átti hér
inni í mörgum húsum og bygði þetta hús; þar eru margir klefar
og margt fólk býr þar til leigu; þar andaðist Einar. Annab hús
bygði hann þar á bak viö, og var þab fyrst geymsluhús, en hann
breytti því síðan í íveruhús og þar var prentsmiðja Sigmundar
Guðmundssonar og þar brann hún. Nú eru talin húsin í þessari
röð og kemur þá Latínuskólinn meö sínum skíðgörðum og
bygg-ingum, sem síðar mun getiö verða; en er því sleppur öllu, þá er
hinumegin hús síra Eiríks Briems prófasts og guðfræðiskennara,
það er einloftað og mjög vandað og þægilegt, og liggur hátt uppi
yíir túnhallanum, sem nær ofan að Tjörninni, en þar fyrir neöan
liggur Skálholtskotsvegur, og eru grjótgaröar beggja tnegin eins
og traðir, en tún fyrir ofan og neðan; ofar viö þann veg stendur
steinhús, er Jón Árnasoti landsbókavörður bygði, en eftir hann
fékk dr. Porvaldur Thoroddsen húsið og lét lengja það; þar býr
nú dr. Jón l’orkelsson rektor. Pá er »Skálholtskot*, sem er
þyrp-ing nokkur af húsurn og bæjum; í einu húsi nýju þar býr síra
Benedikt Kristjánsson. — Ef vér göngum lengra upp eftir
vegin-um, þá komum vér að »Laufási«, aösetursstað séra Pórhalls
Bjarnarsonar, prests að Laufási, og er þessi eign kölluð eftir
honum; þar er fagurt landslag, grösug brekka og frjósamt tún, sem
blasir við suðri og sólu, enda vel hirt og ræktaö, en Tjörnin fyrir
neðan; þar uppi á brekkunni hefur síra Pórhallur látið reisa
eitt-hvert hið snotrasta hús hér á landi, og svo eru peningshús neðar,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0083.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free