- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
89

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

89

á bustinni er stöng með veðurvita og knöttur mikill þar fyrir
neðan; hann var fyrrum gyltur, en eftirkomendurnir tímdu ekki að
nýja gyllinguna upp, er hún var orðin máð af veöri og vindum,
og máluðu knöttínn gulan! — Fjórir gluggar eru á hverri hlið
kirkjunnar, bogadregnir aö ofan, og tveir minni gluggar yfir
hverj-um; en aö innan er hún bygð í rómverskum basilíkastíl, eins og
hinar fyrstu kirkjur voru; súlur beggja megin og svalir eöa
set-pallar uppi, ineð járngrindum fyrir framan; á súlunum er
skurð-smíði ofan til og gulli greypt; þetta er alt úr tré, stórviðum, og
ramlega bygt; var fyrst brúnmálað og nokkuð dökt, og því
fremur dimt inni, en nýlega hefur veriö málað með ljósleitari lit,
og er bjartara síðan. Kórloftið er blátt með gyltuin stjörnum
(sem nú munu sumar vera hrapaðar, og er heppilegt að enginn
hefur orðið fyrir því stjörnuhrapi); uppi yfir altarinu er mynd af
upprisunni, allvel gerð, og eftir þeirri mynd málaði Siguröur
Guð-mundsson nokkrar altaristöflur. Á miðju kórgólfinu er
skírnar-/onturmn, sem Thorvaldsen gaf sem viðurkenningu um íslenzka
ætt sína; haan er úr mamiara, og er honum lýst í Fjölni.
Prédik-unarstóllinn er til hliðar að sunnanverðu og gylt letur á, er svo
segír: »Sælir eru þeir, sem heyra guðs orð og varðveita það«.
Tveir stórir ofnar hafa verið settir í framkirkjuna, og þá voru
tveir reykháfar eöa strompar bygðir upp úr austurbusdnni, og er
það ekki dl prýði. — Pá er kirkjan var bygð, var sett í hana
orgel, sem heuni þótd hæfa sem dómkirkju; það var uppi yfir
framdyrunum og gagnvart altarinu; þar lék Pétur Guðjónsson og
hafði hann lært orgelspil í Danniörku; en eftir lat hans var ekki
leikið á orgelið og því enginn gaumur geíinn, og skemdist þa&
bvo meir og meir. hefur kannske líka verið farið að bila, en
eng-um duttu orð í hug, sem heita »eftirlit* og »aðgerð«; var síðan
og er enn leikið á »harinóníum« í kirkjunni og þykir þaðnóg; —
hver veit nema einhverntíma komi »harinoníka« og þyki einnig
nægja, því heldur sem haft er eftir Attrup, dönskum manni, sem kom
hingað fyrir nokkrum árum, að dómkirkjan þyrfti ekki orgel, en
»har-móníum« væri fullnóg handa henni. enda var ekki von á öðru úr
þeirri átt; kirkjustjórnin tók sig þá til og fór að verzla, og er
auðséð, aö hún er því óvön og hefur ekki gengiö á
verzlunar-skóla, því hún seldi orgelið fyrir 40 krónur, álíka og þvotta-rulla
kostar, eða tvíhleypa, eða fjórir smérfjóröungar vel borgaðir; en
sá mikli söngmeistari og listasmiður Helgi bjargaöi því frá ger-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0095.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free