- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
90

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.



samlegri eyöileggingu — raunar ekki handa dómkirkjunni, þvi hún
verður nú að sitja orgelslaus — svo nú er orgelið jafn gott og
áður, en’ fær nú ekki aö hljóma í dómkirkjutini, eins og til var
ætlast í öndverðu, og má hér minna á orðin í Guðmundar sögu
góöa: »höfuðkirkjan, móðirin, sat í sorg og sút« — orgelslaus og
varð að sætta sig við »harmóníum«!

Uppi á kirkjuloftinu var áður »Stiftisbókasafnið«, sem Rafn
stofnaði, en síðan var það flutt í alþingishúsíð og þá nefnt
»Lands-bókasafn«. Forngripasafniö var og áður á kirkjuloftinu, og voru
þetta neyðar-úrræði.

alÞingishúsið.

Gagnvart dómkirkjunni og í sömu röð er ai.Þingishúsið, sem
bygt var eöa lokið við árið 1881; þar var Bald yfirsmiður, en Meldal
prófessor og byggingameistari gerði uppdráttinn, sem bygt var eftir.
I’etta hús er bygt úr höggnum grásteini, og eru raöir steinanna
tegldar til, en miðflöturinn látinn vera hrufóttur. Margir danskir
stein-höggvarar unnu að þessu verki, og kostaöi byggingin eitthvaö um
150,000 krónur, og er ekki gífurlegt, þótt sumum hafi fundist það ;
en slíkt kemur af ókunnugleika. Pá lærðu margir hér að höggva
og kljúfa grjót, og hefur það síðan verið notað til bygginga tneir

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0096.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free