Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
92
innganginum og borð eða »púlt« fyrir framan; borð og stólar
alþingisskrifaranna sitt hvorumegin, en þingmannaborðiö í hálfhring
kring um forsetastólinn. — Efri deildar salurinn er minni, að því
skapi sem sú deild er fámennari; hann er einnig snotur, og þar
er mynd Kristjáns konungs níunda. Áheyrendapallar eru í báðum
sölunum, hátt uppi undir loftinu og sést þaðan ofan af hæðunum
niður á þingmennina, eins og flugur á jarðríki; er oft afarþröngt á
sætum þessum og mikill troðningur, einkum þá er von er á
»rifr-ildi« í neðri deild, því íslendingar hafa lengst af verið hrifnir af
bardögunum. — Pá eru enn aðrir salir eða stór herbergi, handa
skrifurum, bókasafn þingsins o. fl., og er þar brjóstlíkneski Jóns
Sigurðssonar úr marmara (eftir Bergslien) og Bjarna Thórarensens.
— Uppi yfir þessum sölum er Landsskjalasafnib og eru herbergi
þess allrúmleg um sig, en lágt undir loftið. í þeim herbergjum
var áður Forngripasafnið, en þar var orðið alt of þröngt um það,
svo að síðasta alþingi sá því fyrir húsrúmi í bankahúsinu nýja.
Inn úr efri deildar salnum er uppgangur í herbergi nokkurt me&
húsbúnaði Jóns Sigurðssonar, en minnir annars ekkert á bústað
hans í Kaupmannahöfn, þar sem hann var lengst æfinnar. — Fyrir
framan alþingishúsið er jörðin eöa »hlaðið« lagt með steinsteypu
eða hertu jarðbiki (Asfalt) í tigulmyndum og rennur í fyrir vatnið;
þetta hefur verið gert fyrir tilstilli Tryggva bankastjóra; og hefur
hann einnig látið gera fagran blómgarð á bak við þinghúsið, sem
er hinn fegursti í bænutn; þar er hlaðinn hár múrveggur í kring;
í garðinum eru reitir ýmislega lagaðir, og gangstígar á milli, en í
reitunum eru gróðursett margskonar útlend bióin og trjáplöntur;
einn hóll er þar gerður úr grjóti og moldu og alsettur íslenzkum
jurtum. Öllu þessu skýlir húsið fyrir norðanvindinum, enda liggur
það á móti suðri og nýtur sumarsólarinnar, svo þar er unaðslegt
að koma.
Næst alþingishúsinu er hús Halldórs Friðrikssonar yfirkennara.
Pað hús bygði fyrst Kristján Möller kaupmaður; það var bygt úr
tigulsteini og þá einloftað, en Halldór hefur látið byggja ofan á
það, svo nú er það tvíloftað og álitlegra en áður, og er mjög
snoturt hús; þar á bak viö er grasflötur og gar&ur, en Halldór
er búmaður mikill. Par næst er hús Kristjáns Porgrímssonar, bygt
af honum, tvíloftaö og mjög vandað; þar haföi Kristján bókasölu
allmikla, og þar var náttúrugripasafnið nokkur ár í tveim
herbergj-um niöri; síöan hefur þar verið verzlun og »skrifstofa almennings«;
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>