- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
93

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

93

þar býr Kristjan og hinn gamli stjörnumeistari Halldór
Guðmunds-son, og hefur þar gát á himintunglunum eins og Einar þveræingur
forðum. — I’a er hús nokkurt einkar fagurt, einloftað, sem Helgi
Einarsson bygði, barnaskólastjóri. og þar andaðist hann; síðan
hafa ýmsir búið þar. — Par í götunni er hlið, og gengið inn til
endurskoðarans Indriða Einarssonar; mega allir vera hræddir utn,
aö upp um þá komist, aö þeir kunni ekki að leggja saman, því
ekki mun Indriði hlífa þeim; en þetta hús var fyrst bygt af Ludvig
Knudsen verlzunarmanni, og keypti Indriöi það síðan. — Gagnvart
þessum húsum í götunni er lyfjabúðin, sem síðar mun verða á
minst; þá er »Gatnli kirkjugarðurinn«, þar sem ýmsir merkismenn
hvíla, gleymdir undir gleymdum gröfutn; en Schierbeck latidlæknir
geröi úr kirkjugarðinuni stóran og fagran aldingarð, og liggur þar
hús mikið, er hann lét byggja og bjó þar, þangað til liann fór
héðan; þá keypti lialldór Danielsson bæjarfógeti húsið og býr þar.
Hús þetta er reisulegt og rajög vandaö, enda var Jakob
Sveins-son þar yfir.smiður; þaö er ekki í neinni götu, en mjór gangur
liggur úr Aðalstræti aö húsinu. — Gagnvart bæjarfógetagarðinum
er hús Perneyjar-systra og hús Gunnars Einarssonar kaupmanns,
og eru áföst saman og múrveggur á milli (því elcki má byggja
tvö hús saman netna eldfastur múr sé á milli húsanna). Par sem
þessi hús standa, var áöur stór matjurtagarður, sem heyröi til
»Perneyjar-húsi«, setn svo var nefnt; það var lítið timburhús, bygt
af Jóhannesi Zoéga, föður Geirs kaupmanns, og bjó hann þar lengi,
■og þar var Geir fæddur; seinna keypti Sigurður Arason húsiö og
fluttist þangað frá Þerney, sem hann átti hálfa, og síðan var húsiö
kallað »Perneyjar-hús« og dætur Sigurðar »Perneyjar-systur«. Pær
seldu Gunnari kaupmanni húsið og létu byggja sér annað hús,
þaö sem þegar var nefnt, tvíloftað og mjög snoturt, og búa þær
þar nú. En Gunnar kaupmaður lét byggja hús þar áfast við,
miklu stærra og þriloftaö; þaö er eitt ’svo i Reykjavik, að
undan-teknu Breiðfjörðshúsi. I þessu húsi Gunnars er sölubúð hans, og
eitthvað 30 herbergi, og leigja þar ýmsir. Hús þetta er mjög
álitlegt og liggur á horninu á Tjarnargötu. I þeirri götu er fremur
lítib hús, sem Geir T. Zoega kennari átti og bjó þar nokkur ár;
upprunalega var þar timburhús og þar bjó Krístófer Finnbogason
bókbindari, en seinna Petersen nokkur, verzlunarmaður, og ekkja
hans lengi eftir hann; þar bjó og Pórður skóari, kallaður
»Thord-arsen«, sem sagði »bonus dies«, þegar hann mætti manni, en »jeg

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0099.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free