- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
96

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

96

ljúka því af. Pá liggur beiiit fram undan uss
»Kirkjugarðsstígur-inn«, sem nú heitir Sudurgata, og er vér göngum hann út eftir,
þá er tíl vinstri handar fyrst garðurinn, sem heyrir til húss
Stein-gríms Thorsteinssonar, sem fyr var á minst; þá er einloftað og
snoturt hús, sem synir Péturs Guðjónssonar létu byggja handa
móður sinni, og býr þar nú tengdasonur hennar, Halldór Jonsson
bankagjaldkeri, sem nú mun vera eigandi hussins. Par næst er
hús Björns 1 Ijaltesteds. járnsmiðs; þnr bjó fyrrum Teitur
Finn-bogason dýralæknír og jámsmiður, og var húsið þá lítið, en hefur
verið mikiö stækkað síöan og breytt. Par hjá er mikill
matjurta-garður, og enda víðar þar fram meö tjörninni; þar er og líklega
hin elzta járnsmiðja í Reykjavik. - Par næst eru »Brunnhús*;
þar var Porsteinn lögreglumaður lengi, sá er bygði »Doktorshúsið«,
smiður mikill og merkilegur maður; síöan hefur húsið verið lengt,
en er annars ab öllu leyti óbreytt og mesta hreysi oi;ðið. Par
fyrir utan er tvíloftað timburhús, sem Teitur Ingimundarson bygði
upp úr litlu tréhúsi, sem upprunalega var bygt af Pétri nokkrum
beyki, en síðan varð eigti Grundtvigs skraddara og var þá kallað
»Grundtvigshús«, og var mesta kytra. Nú er Stefán Egilsson
múrari eigandi hússins, og er þaö yzt í þessari röð, en þá tekur
Tjaruarbrekkan við. Vér skulum snúa hér við og aftur inn til
bæjarins; þá er yzt eitt hús álitlegt og tvíloftaö, sem Andrés
verzlunarmaður Andrésson (bróðir séra Magnúsar á Gilsbakka)
hefur bygt upp úr minna húsi, sem Jóhanues snikkari hafði bygt;
þar næst er stói t og stæðilegt hús, tvíloftað, eitthvert stærsta hús
í bænum, nú eign dómkirkjuprestsins og Halldórs Pórðarsonar
bók-bindara. Par hafði Egill Jonsson bókbindari áður bygt hús með
kvisti, og þótti það þá eitthvert snotrasta hús bæjarins, og þar
bjó hann lengi; en eftir hans dag brann það upp til kaldra kola
og var þá reist þetta hús, miklu stærra og stórfenglegra; er því
skift í tvent þversum milli eigandanna. Pá eru tvö lítil hús, sem
annað átti frú María Finsen, ekkja Ólafs sýslumanns, fööur
Vil-hjáltns og Óla póstmeistara og þeirra bræðra ; en hitt bygði Jakob
Sveinsson og bjó þar um stund; síðan hafa þessi hús orðið eign
annara. Par næst er langt hús og lágt, fornlegt, lengi kallað
»Otte-senshús«; það er svo utidir komiö að rikur Englenditigur, að nafni
Dillon, kom hingað og feldi ástarhug til-Sigríðar, sem seinna varð
»madama Ottesen«, og átti með henni dóttur; en ekki fékk hann
að giftast Sigríöi, því að ættmenn hans á Englandi stóðu á móti,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0102.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free