Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
95
hluta. Petta veitingahús stóð lengi og er það ferhyrndur kassi
með uppmjóu strýtuþaki og strompur upp úr miðjunni; hafði
Svein-björn Hallgrímsson það að háði í Pjóðólfi og kallaði það
»oka-ker«, enda er byggingarlagið næsta ljótt Seinna gáfu kaupmenn
bænum húsið og var það gert að spítala og sett á það spjald
mikiö með »Hospítal« á, og stóð við það nokkur ár. Eftir það
keypti eða leigði Englendingur nokkur húsið og hafði þar vezrlun
illa og óþriflega; síðan varð það eign Björns Kristjátissonar
kaup-manns, og leigði hann það út, svo það varð veitingahús aftur og
voru þar dansleikir og skemtanir ^Reykjavíkur klúbbsins«; þar
eftir seldi Björn Kristjánsson húsið og þá lenti þaö í
»Sáluhjálpar-hernum« eða »Frelsishernum« eða »Hjálræðishernum« — »kært
Barn har manga Navne« segir danskurinn — og svo varð það að
>Herkastala«, en er í rauninni mesta skrapatól orðið og breysi,
svo að jafnvel fyrir löngu var norðurveggurinn studdur með
staur-um, en nú er því aftur hætt, og hirðir líklega enginn um, þótt
hróatildur þetta skekkist eða falli. Auk dansleikjanna voru þar
áöur sjónleikir og leikið eftir föngum, þótt ekki væri af eins
dýrðlegri list og nú tíðkast; en nú er í þessa stað kominn
sálma-söngur með simfóni og salteríó og margskonar guðræknis-æfingum;
þar hefur »Herinn« einnig stofnað gistihús handa fátækum
að-komumönnum og frávillingum, og kostar það afarlítið að fá þar
rúm og kaffi, miklu minna en annarstaðar, og betri viðurgerningur
og hjúkrun, því oft eru þessir menn ekki sem bezt á sig komnir,
og er þetta mjög virðingarvert og í rauninni »Hersins« bezta verk.
Við hliðina á »kastalanum« eru leifar eða rústir »Gamla
klúbbs-ins«, þar sem Hendrichsen »pólití« sat nætur og daga við
konjaks-kolluna, eða lék á flautu á dansleikjunum. Hendrichsen var stór
og sköllóttur — haßi verið þjónn hjá Schulenberg greifa; hann
lét staíinn ríða á íslentiingum, þá er þeim sló saman við Dani.
Um hann var þetta kveðið: »Hendrichsen á hafsins brún | horfir
malarkambi frá, | skrifar röðull skrítna rún | skallann pólitíis á«. Á
»Gamla klúbbnum« dansaði Jörgensen »íslands-verndari«, og þar
hafa margir merkismenn komið: Bjarni Thórarensen, Jónas
Hall-grímsson og fleiri.
Pegar vér nú stöndum við horniö á »Herkastalanum«, þá erum
vér eins og Herkúles á vegamótum: annaöhvort er að snúa inn
til höfuðborgarinnar og í hennar glaum og ginnandi »starfslíf«, eöa
þá út eftir, og það munum vér nú gera fyrst um sinn, til þess a5
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>